Misboðið eftir dóm gærdagsins: Missti dóttur sína í svipuðu atviki - „Ég er reið“

Hörður Snævar Jónsson

Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 13:30

Natasha var aðeins 25 ára þegar hún lést.

Rachel Jarvis, móðir ungrar konu sem lést í bílslysi af völdum ökumanns undir áhrifum hláturgass, hefur gagnrýnt harðlega dóminn yfir Raheem Sterling, fyrrverandi landsliðsmanni Englands.

Sterling, sem er 31 árs, hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm eftir að hafa játað hættulegan akstur, vörslu hláturgass og að hafa neitað að gefa sýni við rannsókn lögreglu.

Sterling var handtekinn í maí eftir að hafa ekið Lamborghini-bifreið sinni með stórhættulegum hætti á hraðbrautum í Englandi. Ökumenn lýstu því hvernig hann sveigði á milli akreina og andaði að sér hláturgasi úr blöðrum undir stýri.

Rachel, sem er 52 ára, missti dóttur sína, Natasha Woroch, í júlí 2023. Natasha var aðeins 25 ára þegar kærasti hennar, Connor Malpass, olli banaslysi undir áhrifum hláturgass.

Malpass ók á um 129 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn var um 48 kílómetrar á klukkustund. Hann var dæmdur í rúmlega þrettán ára fangelsi.

Rachel segir dóminn yfir Sterling senda röng skilaboð. „Ég er reið. Þetta er allt of vægur dómur, sérstaklega miðað við hversu þekktur hann er. Margir ungir ökumenn líta upp til hans. Það hefði átt að láta hann verða öðrum víti til varnaðar,“ sagði Rachel við The Sun.

Hún segist hafa sent Sterling tölvupóst eftir handtökuna og óskað eftir aðstoð hans við vitundarvakningu um hættur hláturgass meðal skólabarna.

„Ég bað hann um að koma fram og hjálpa okkur að fræða börn í skólum. Ég hef aldrei fengið svar.“

Dómarinn Kirsty Allman gagnrýndi stórhættulegan akstur Sterling en tók jafnframt tillit til þess að knattspyrnumaðurinn hefði leitað sér aðstoðar vegna fíknivanda.

Sterling, sem lék 82 landsleiki fyrir England, var einnig sviptur ökuréttindum í tvö ár og gert að sinna 100 klukkustundum í samfélagsþjónustu.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab