„Fyrr í mánuðinum greindist ég með krabbamein“
Rán Flygenring, rithöfundur og teiknari, greinir frá því í Facebook-færslu að hún hafi greinst með krabbamein. Segir hún þetta vera ástæðuna fyrir því að hún sé ekki á ferð og flugi að kynna bókina Bananasafnið í jólabókaflóðinu.
„En skjótt skipast veður í lofti. Fyrr í mánuðinum greindist ég með krabbamein,“ skrifar Rán meðal annars. Í færslunni greinir Rán frá því að hún sé með Hodgkin's eitilfrumukrabbamein og er strax byrjað að lækna hana. Rán sem er einn skemmtilegasti teiknari landsins birti litla myndasögu með færslunni. Þar kom fram að henni fannst hún ekki vera veik og hún væri að taka inn fullt af lyfjum.
Góður árangur
Á vef Krabbameinsfélagsins kemur fram að yfir 30 tegundir af eitilkrabbameini séu þekktar. „Skiptast þær í bæði Hodgkins og Non-Hodgkins mein. Fimm tegundanna teljast til Hodgkins og eru þau sjaldgæfari en hin. Ólíkt flestum krabbameinum leggst Hodgkins gjarnan á ungt fólk og er meðalaldur við greiningu um 40 ár,“ segir á vefnum. Einnig að oft sé hægt að lækna Hodgkins með góðum árangri.
Bananar í uppáhaldi
Bananar eru nýjasta viðfangsefni Ránar í bókinni Bananasafnið en í viðtali við Morgunblaðið segir Rán að bananar hafi lengi verið í uppáhaldi hjá henni. Bókin fjallar um Pálma sem er nýfluttur í blokk þar sem hann þekkir engan. Til að létta lund hans gefa foreldrar hans honum framandi piparfugl. Dag einn sleppur fuglinn út og leit Pálma leiðir hann inn á stórmerkilegt neðanjarðarbananasafn þar sem birtist heill töfraheimur.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/21/1692159.jpg)