Gætu lækkað námslán starfsfólks um 1,5 milljónir
Áætlað er að kostnaður vegna úrræðisins geti numið allt að 300 milljónum króna á ári. Fáist fjármögnun tryggð gæti úrræðið komið til framkvæmda haustið 2027. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur unnið að undirbúningi ívilnana við endurgreiðslu námslána til að bregðast við skorti á heilbrigðisstarfsfólki á landsbyggðinni.
Í bráðabirgðakostnaðarmati er miðað við að höfuðstóll námslána verði lækkaður um 1,5 milljónir króna hjá hverjum lánþega sem á rétt á ívilnuninni.
Áætlað er að kostnaður vegna úrræðisins geti numið allt að 300 milljónum króna á ári. Fáist fjármögnun tryggð gæti úrræðið komið til framkvæmda haustið 2027.
Þetta kemur fram í svari Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, við fyrirspurn Ingveldar Önnu Sigurðardóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem birt var á vef Alþingis í gær.
Fimm beiðnir liggja fyrir
Ráðuneytinu hafa borist fimm beiðnir um að heimild í 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna verði nýtt vegna skorts á heilbrigðisstarfsfólki á landsbyggðinni.
Beiðnirnar varða heilbrigðisþjónustu í Rangárþingi ytra og eystra, á norðanverðum Vestfjörðum, á Hvammstanga, á Höfn í Hornafirði og á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
Skýrslur Byggðastofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga liggja fyrir vegna allra beiðnanna. Ráðuneytið óskaði eftir tillögum að útfærslu og kostnaðarmati frá Menntasjóði námsmanna í september í fyrra og bárust gögnin í október sama ár.
Samkvæmt lögum um Menntasjóð námsmanna er ráðherra heimilt að veita tímabundnar ívilnanir við endurgreiðslu námslána vegna skorts á menntuðu starfsfólki á tilteknum landsvæðum. Hér má sjá Loga Einarsson háskólaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Starfi í að minnsta kosti tvö ár
Samkvæmt lögum um Menntasjóð námsmanna er ráðherra heimilt að veita tímabundnar ívilnanir við endurgreiðslu námslána vegna skorts á menntuðu starfsfólki á tilteknum landsvæðum.
Meðal skilyrða er að lánþegi hafi lokið námi, búi á viðkomandi svæði og starfi þar við það sem hann hefur menntað sig til. Starfshlutfallið þarf að vera að minnsta kosti 50% og starfstíminn að lágmarki tvö ár.
Óskað eftir fjármagni í fjárlögum
Byggðastofnun á eftir að greina nánar hvaða landsvæði og starfsstéttir úrræðið skuli taka til. Endanlegur kostnaður ræðst af þeirri afmörkun, fjölda lánþega sem njóta ívilnunarinnar og starfshlutfalli þeirra.
Óskað hefur verið eftir fjármagni í fjárlögum næsta árs en niðurstaða liggur ekki fyrir.
Auk fjármögnunar er framkvæmd úrræðisins háð því að skilyrði laganna séu uppfyllt og að ráðherra gefi út auglýsingu um ívilnunina.
Viðræður um skattafslátt skiluðu ekki niðurstöðu
Ingveldur Anna spurði ráðherra jafnframt hvort frekar hefði verið kannað að veita tímabundinn skattafslátt til að laða sérhæft starfsfólk til starfa á landsbyggðinni.
Fram kemur í svari ráðherra að viðræður hafi átt sér stað við fjármála- og efnahagsráðuneytið árið 2024 um breytingar á lögum um tekjuskatt í þessu skyni en þær hafi ekki leitt til niðurstöðu.
Horft til norskrar fyrirmyndar
Almennari búsetutengdar ívilnanir að norskri fyrirmynd hafa einnig komið til skoðunar. Íbúar í Finnmörku og norðurhluta Troms-fylkis í Noregi geta meðal annars notið árlegrar niðurfellingar hluta námslána og skattalegra ívilnana.
Í hvítbók um byggðamál frá því í júní er lagt til að Byggðastofnun meti hvort fýsilegt sé að taka upp sambærileg úrræði hér á landi, hvaða svæði þau gætu náð til og hver kostnaðurinn yrði.
Ráðherra tekur þó fram að almenn niðurfelling námslána á grundvelli búsetu, óháð því hvaða námi fólk hefur lokið eða hvort það nýtir menntun sína í starfi, kalli á sérstaka lagaheimild og fjármögnun.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
