Björgun fjórtán skipverja með hreinum ólíkindum
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir björgun fjórtán skipverja Jökuls í gær vera með hreinum ólíkindum og að um þrekvirki áhafnar Landhelgisgæslunnar hafi verið að ræða.
„Að ná fjórtán mönnum úr svona aðstæðum, það er algjört þrekvirki,“ segir hann.
Í morgun hefur nokkur umræða átt sér stað um þyrlukost Landhelgisgæslunnar, en Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði á fundi stjórnvalda í morgun að víkja hafi þurft frá öryggisverklagi og allar reglur hafi verið þverbrotnar þegar ein þyrla var send í útkallið.
Það helgist meðal annars af því fjórðu þyrluna þurfi til að geta haft tvær þyrlur flestum stundum til taks.
Verður örugglega hávær umræða
Spurður út í öryggismálin segir Valmundur að örugglega sé margt sem megi læra af slysinu og margir hlutir þar sem megi bæta öryggi. „Við eigum eftir að ræða það og það verður örugglega hávær umræða,“ segir hann.
Að svo stöddu telur hann hins vegar eiga að bíða með allt slíkt tal og að rétt sé að leyfa aðstandendum þeirra sem létust að syrgja.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗