Myndir: Víða flaggað í hálfa stöng á Húsavík

Flaggað er í hálfa stöng víða á Húsavík í dag.

Flaggað er í hálfa stöng víða á Húsavík í dag. Ljósmynd/Aðsend

Sveitarstjórn og starfsfólk Norðurþing sendir fjölskyldum og ástvinum þeirra þriggja skipverja Jökuls ÞH sem létust samúðarkveðjur. 

Í tilkynningu á vef sveitarfélagsins segir: 

„Hugur okkar allra er hjá áhöfninni, fjölskyldum hennar, ástvinum, starfsfólki og eigendum GPG Seafood ehf. í kjölfar hins hörmulega sjóslyss sem varð í gær.

Við færum viðbragðsaðilum, áhöfnum nærliggjandi skipa og öllu því hugrakka fólki sem kom að björgunaraðgerðum innilegar þakkir fyrir það þrekvirki sem unnið var við erfiðar aðstæður. Það verður aldrei fullþakkað.“

Þá er minnt á bænastund sem verður í Húsavíkurkirkju í dag kl. 17. 

Fjöldi fyrirtækja hefur flaggað í hálfa stöng til minningar um þá sem létust. Ljósmynd/Aðsend

Við Húsavíkurhöfn.

Við Húsavíkurhöfn. Ljósmynd/Aðsend

Við bensínstöð N1 í bænum.

Við bensínstöð N1 í bænum. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab