Mikið áfall að missa Frey

Freyr á ímynduðu hjóli.

Freyr á ímynduðu hjóli. Ljósmynd/Rosenborg

Það yrði mikið áfall fyrir Rosenborg að missa Frey Alexandersson, að sögn Birger Løfaldli, íþróttafréttamanns norska dagblaðsins Adresseavisen, en Freyr verður líklegast næsti stjóri Swansea sem leikur í ensku B-deildinni.

„Rosenborg þarf líklega að fara aftur í þjálfaraleit og það er gríðarlegt áfall fyrir félag sem hefur loksins fundið einhvern sem getur leitt það upp á við,“ sagði Løfaldli í samtali við Nettavisen.

Freyr tók við í júní og er samningsbundinn til ársins 2029. Hann hefur komið Rosenborg úr fallsæti og í baráttuna um Evrópusæti, en aðeins Bodø/Glimt hefur safnað fleiri stigum í deildinni síðan Freyr tók við.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab