Myndir: Víða flaggað í hálfa stöng á Húsavík
Sveitarstjórn og starfsfólk Norðurþing sendir fjölskyldum og ástvinum þeirra þriggja skipverja Jökuls ÞH sem létust samúðarkveðjur.
Í tilkynningu á vef sveitarfélagsins segir:
„Hugur okkar allra er hjá áhöfninni, fjölskyldum hennar, ástvinum, starfsfólki og eigendum GPG Seafood ehf. í kjölfar hins hörmulega sjóslyss sem varð í gær.
Við færum viðbragðsaðilum, áhöfnum nærliggjandi skipa og öllu því hugrakka fólki sem kom að björgunaraðgerðum innilegar þakkir fyrir það þrekvirki sem unnið var við erfiðar aðstæður. Það verður aldrei fullþakkað.“
Þá er minnt á bænastund sem verður í Húsavíkurkirkju í dag kl. 17.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


