Arfavitlaust veður á landleiðinni

Frá fyrri löndun úr Vestmannaey VE í Neskaupstað.

Frá fyrri löndun úr Vestmannaey VE í Neskaupstað. Ljósmynd/SVN/Smári Geirsson

Vestmannaey VE var um 45 mílur frá slysstaðnum þegar Jökull ÞH fórst í gær. Skipið landaði í Neskaupstað í morgun.

Á vef Síldarvinnslunnar segir Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, að leiðindaveður hafi verið allan túrinn.

„Veðrið var svo sannarlega ekki gott og á landleiðinni var það arfavitlaust,“ segir hann. „Slysið var hörmulegt og auðvitað hefur það mikil áhrif á alla sjómenn.“ 

Skipið kom að landi með 30 tonn, mest þorsk. „Veitt var á Herðablaðinu, Gerpisflaki og Tangaflaki,“ segir Egill Guðni.

Fram kemur að aðrir ísfisktogarar í Síldarvinnslusamstæðunni hafi líka landað í vikunni, Bergey VE rúmum 50 tonnum í Neskaupstað í gær og Birtingur NK 90 tonnum á Skagaströnd.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab