Nýr framkvæmdastóri NASF á Íslandi

Samsett mynd af nýjum og fráfarandi framkvæmdastjóra NASF á Íslandi, Elíasi Pétri Viðfjörð Þórarinssyni og Elvari Erni Friðrikssyni. Ljósmynd/Samsett/NASF

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn Verndarsjóðs villtra laxastofna (North Atlantic Salmon Fund eða NASF).

Katrín Jakobsdóttir.

Katrín Jakobsdóttir.

Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri og Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi formaður VG, kemur ný í stjórn sjóðsins. 

Í tilkynningu sjóðsins kemur fram að Elvar Örn Friðriksson, sem leitt hefur sjóðinn frá árinu 2020, hafi að eigin ósk látið af störfum sem framkvæmdastjóri.

Hann starfi þó áfram sem ráðgjafi sjóðsins í umhverfis- og auðlindamálum.

Elías Pétur, sem tekinn er við, hefur áður starfað sem sjálfboðaliði fyrir sjóðinn.

Fram kemur að líkt og Elvar hafi hann bakgrunn sem veiðileiðsögumaður og báðir eru sagðir hafa unnið ötult starf um margra ára skeið við að verja villta laxastofninn fyrir áhrifum sjókvíaeldis og netaveiða.

„Þeir hafa enn fremur haldið minningu stofnanda sjóðsins, Orra Vigfússonar, á lofti,“ segir í tilkynningunni. 

Orri stofnaði sjóðinn á sínum tíma, en Katrín Jakobsdóttir, sem tekið hefur sæti í stjórn NASF er sögð hafa þekkt Orra í gegnum vinskap hans við föður hennar.

Friðleifur Egill Guðmundsson.

Friðleifur Egill Guðmundsson. Ljósmynd/NASF á Íslandi

Haft er eftir Friðleifi Agli Guðmundssyni, stjórnarformanni verndarsjóðsins, að mikið hafi mætt á villta laxastofninum síðustu árin hér við Ísland þar sem heimilaður hafi verið mikill vöxtur sjókvíaeldis með frjóum norskum laxi.

Það segir hann ógna villta íslenska laxinum og lífsviðurværi á þriðja þúsund íslenskra fjölskyldna sem hafi tekjur sínar af laxveiði og tengdri ferðaþjónustu.

„Það er okkur því mjög mikilvægt að efla starfsemina með þessum hætti og fögnum við sem höfum dregið vagninn hingað til því sérstaklega að fá Katrínu Jakobsdóttir til liðs við stjórn sjóðsins en innsýn hennar á eftir að reynast dýrmæt þar sem við verðum að leita leiða sem í senn vernda villta laxastofninn og styðja við atvinnusköpun í brothættum byggðum,“ segir hann.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅