Vísað úr húsi eftir rifrildi við stjörnuna

Kevin Durant og Dillon Brooks skiptast á kveðjum í nótt.

Kevin Durant og Dillon Brooks skiptast á kveðjum í nótt. AFP/Alex Slitz

Dillon Brooks, framherja Phoenix Suns, var vísað úr húsi eftir hörð orðaskipti við Kevin Durant, stjörnu Houston Rockets, í 116:104-heimasigri Houston í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Báðir fengu tæknivillu en það var önnur tæknivilla Brooks í leiknum. Durant skoraði 20 stig og varð fimmti leikmaðurinn í sögu NBA til að ná 33.000 stigum á ferlinum.

LeBron James skoraði 25 stig, gaf 12 stoðsendingar og tók tíu fráköst og náði þar með sinni fyrstu þreföldu tvennu með Philadelphia 76ers þegar liðið vann Miami Heat 111:104 á heimavelli.

Tyrese Maxey bætti við 30 stigum, en Giannis Antetokounmpo skoraði 32 stig og tók 14 fráköst fyrir Miami.

Stórleikur Victors Wembanyama dugði ekki til að koma í veg fyrir 116:111-tap San Antonio Spurs á útivelli gegn Portland Trail Blazers. Frakkinn skoraði 44 stig og tók 16 fráköst.

Deni Avdija fór fyrir Portland með 33 stig, 12 fráköst og sjö stoðsendingar, en Damian Lillard bætti við 29 stigum.

Úrslit næturinnar:

Philadelphia 76ers 111:104 Miami Heat

Charlotte Hornets 105:107 Chicago Bulls

New York Knicks 121:102 Cleveland Cavaliers

Oklahoma City Thunder 106:113 Minnesota Timberwolves

Memphis Grizzlies 115:97 Los Angeles Clippers

Milwaukee Bucks 97:104 Brooklyn Nets

Houston Rockets 116:104 Phoenix Suns

Golden State Warriors 129:110 Sacramento Kings

Portland Trail Blazers 116:111 San Antonio Spurs

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab