Myndskeið: Hafbjörg á vettvangi í gærkvöldi

Þrjú björgunarskip frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg voru kölluð út í gærkvöldi vegna sjóslyssins fyrir austan en aðeins eitt þeirra fór alla leið á vettvang, eða Hafbjörg frá Neskaupstað.

Vegna þess að sjólagið var best fyrir Hafbjörg og hentaði siglingastefnunni betur fór skipið alla leið á meðan björgunarskipum frá Vopnafirði og Raufarhöfn var snúið við.

Hafbjörg var í um hálfan sólarhring í verkefninu og var skipið komið aftur til hafnar á sjötta tímanum í morgun, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa hjá Landsbjörgu.

„Þeir veltu fyrir sér hvort þeir hefðu skip í verkefnið en ákváðu engu að síður að fara. Ég held að skipið hafi sýnt að það réði alveg við verkefnið en það var verra í sjóinn, sögðu þeir, á vettvangi heldur en á leiðinni,“ greinir Jón Þór frá, spurður út í veðrið.

Frá vettvangi í gærkvöldi.

Frá vettvangi í gærkvöldi. Ljósmynd/Landsbjörg

Voru í búningum og með sjókall 

Hafbjörg var komin á staðinn skömmu eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar byrjaði að hífa skipverjana upp úr sjónum. Björgunarskipið hafi fyrst og fremst verið til taks.

Jón Þór nefnir að það hafi hjálpað til við leitina í gærkvöldi að skipverjarnir hafi bæði verið í flotbjörgunarbúningum og með sjókall, sem er neyðarsendir á björgunarvestum sem kviknar á þegar hann kemst í snertingu við saltvatn. Neyðarsendarnir hafi birst sem litlir punktar á tölvuskjá skipanna sem voru í grennd, með nákvæma staðsetningu.

Gerðu allt rétt

Jón Þór segir að skipverjarnir hafi gert allt rétt á vettvangi. Eins og kennt er í Slysavarnarskólanum hafi þeir bundið sig saman, þannig að auðveldara hafi verið að finna þá, og um leið hafi þeir veitt hver öðrum styrk í þessum erfiðu aðstæðum. Þeir voru jafnframt í tveimur hópum í sjónum. 

„Ef við horfum til baka þá er það mjög þungt að ekki hafi verið hægt að bjarga öllum á lífi en ég held að allir sem komu að aðgerðinni seinnipartinn í gær hafi nálgast hana með þeim hætti að þetta gæti endað mjög illa. Þannig að það var öllum mjög létt þegar það náðist til fólksins og þetta margir reyndust á lífi,“ segir Jón Þór.

Þyrla Gæslunnar.

Þyrla Gæslunnar. Ljósmynd/Landsbjörg

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab