Davíð Snorri sagður á leið til Swansea með Frey
Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 12:34
Davíð Snorri Jónasson. Getty Images
Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, gæti verið á leið í enska boltann með Frey Alexanderssyni.
Freyr hefur verið sterklega orðaður við stjórastarfið hjá Swansea City undanfarna daga en liðið leikur í ensku B-deildinni, Championship.
Búist er við því að Freyr taki við velska félaginu eftir leik Rosenborg og Molde í norsku úrvalsdeildinni um helgina. Með sigri tekur Rosenborg stórt skref í átt að því að tryggja sér Evrópusæti á næsta tímabili.
Hjörvar Hafliðason greindi frá því í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag að samkvæmt hans heimildum myndi Freyr taka Davíð Snorra með sér til Wales.
„Miðað við það sem ég hef heyrt er hann að taka Davíð Snorra með sér,“ sagði Hjörvar í þættinum.
Það gæti því orðið breyting á þjálfarateymi íslenska landsliðsins á næstunni fari svo að Davíð Snorri fylgi Frey til Swansea.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗