Áhrifamiklar myndir og myndskeið frá björguninni varpa ljósi á hrikalegar aðstæður
Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur birt myndbönd af björguninni í gærkvöldi. Þrír sjómenn létust og fjórtán björguðust. Samkvæmt heimildum Vísis eru tveir hinna látnu Íslendingar og sá þriðji af erlendu bergi brotinn. Áhöfnin var skipuð sextán karlmönnum og einni konu.
Fram kom á blaðamannafundinum í Ráðherrabústaðnum í morgun voru aðstæður á vettvangi mjög erfiðar. Georg Lárusson forstjóri Landshelgisgæslunnar hafði eftir flugmanni þyrlunnar að það hefði verið 50 mílna vindur og sex metra ölduhæð. Myndirnar og myndskeiðin frá Landhelgisgæslunni varpa enn meira ljósi á hversu hrikalegar aðstæðurnar voru.
Sjá einnig: „Við gátum séð þá einn af öðrum stökkva í sjóinn“
Skipstjóri lýsti yfir neyðarástandi upp úr kl. 17 í gær. Jökull ÞH 299 var á grálúðuveiðum og var um 100 kílómetra austur af Glettingi þegar skipið sökk.
Flugvélin TF-Sif var fyrst á vettvang um kl. 20 og fann mennina, gúmmíbát var kastað til þeirra en þeir náðu honum ekki. Þyrlan TF-Gró var komin á vettvang kl. 21:15. Þyrlan lenti svo á Egilsstöðum kl. 23:45 í nótt.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗