„Þetta fær á alla sem að þessu koma“
Verið var að bjarga síðustu skipverjunum af Jökli ÞH úr sjónum þegar frystitogarinn Blængur frá Norðfirði kom á slysstað fyrir austan í gærkvöldi.
„Það voru nokkur skip þarna sem voru komin fyrr á staðinn þannig að okkar aðkoma var frekar lítil,“ segir Geir Stefánsson, fyrsti stýrimaður á Blængi, aðspurður.
Þar á hann við skuttogarann Harðbak EA og uppsjávarskipið Svan.
„Það var verið að bjarga seinustu mönnunum úr sjónum þegar við komum á staðinn. Þetta var að verða afstaðið,“ bætir Geir við og nefnir að veðrið hafi verið leiðinlegt.
Hann segir að Blængur hafi verið til taks en að björguninni hafi verið formlega lokið stuttu eftir að togarinn kom á vettvang.
Aðspurður segir hann að aðkoman hafi vitaskuld verið erfið. „Þetta fær á alla sem að þessu koma, það er engin spurning.“
Blængur var á staðnum í um hálftíma til klukkutíma áður en hann hélt sína leið en 26 manns eru um borð í skipinu, sem er nú á veiðum.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗