Mikil lækkun hjá Alvotech eftir tilkynningu
Hlutabréfaverð Alvotech hefur lækkað um 15,35% í 147 milljón króna viðskiptum það sem af er degi. Lækkunin kemur í kjölfar frétta í morgun um bráðabirgðalögbann sem lyfjafyrirtækið Janssen fékk á Alvotech vegna AVT05, fyrirhugaðrar hliðstæðu Alvotech við lyfin Simponi og Simponi Aria, í Bandaríkjunum.
Dómstóll í Virginíu féllst á beiðni lyfjafyrirtækisins Janssen um lögbannið. Alvotech ætlar að áfrýja niðurstöðunni samkvæmt tilkynningu félagsins í morgun og óska eftir flýtimeðferð.
Lögbannið varðar eitt einkaleyfi á síunarferli í framleiðslu að því er fram kemur í tilkynningu. Alvotech telur framleiðsluferli sitt ekki brjóta gegn einkaleyfinu og telur það jafnframt ógilt vegna áður þekktrar tækni.
Félagið gerir enn ráð fyrir að AVT05 verði meðal fyrstu hliðstæðna við Simponi á Bandaríkjamarkaði.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗