Kveðjum og hjörtum rignir inn frá Færeyingum

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 11:49

Tórshavn í Færeyjum. Mynd/Pexels

Færeyingar hafa fylgst vel með fréttum af sjóslysinu í gær og afdrifum skipverjanna, mikill fjöldi Færeyinga hefur sent frá sér kveðjur og hjörtu í gegnum samfélagsmiðla. 

Fréttir Kringvarpsins og In.fo hafa fengið gífurleg viðbrögð. In.fo var að fylgjast með fréttum frá Íslandi í nótt og koma þeim til Færeyinga. Fréttir af framvindunni og blaðamannafundinum í Ráðherrabústaðnum hafa svo haldið áfram í morgun á Kringvarpinu og á In.fo. 

Hátt í sjö hundruð Færeyingar sendu hjarta, kveðjur eða annað tjákn, nokkrar athugasemdir gefa til kynna að þeir hafi einnig verið að fylgjast grannt með íslenskum fréttum af framvindunni.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab