Þorgerður Katrín: „Erum staðráðin í að koma fjórðu þyrlunni í gagnið“
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 12:00
Þorgerður Katrín Gunnardóttir. Mynd: DV/KSJ
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, segir að ríkisstjórnin muni hraða vinnu við að fjölga þyrlum Landhelgisgæslunnar eins og kostur er og að hún sé staðráðin í að koma fjórðu þyrlunni í gagnið.
Þetta kemur fram í færslu Þorgerðar Katrínar á Facebook í kjölfar sjóslyssins fyrir austan í gær þar sem þrír skipverjar á Jökli ÞH létust en fjórtán var bjargað.
Þorgerður Katrín sendir fjölskyldum þeirra sem létust innilegar samúðarkveðjur og segir hug sinn einnig hjá þeim sem komust lífs af og fjölskyldum þeirra.
Hún lýsir jafnframt því sem fyrir augu hennar bar í samhæfingarmiðstöðinni í nótt.
„Það var áhrifamikið að finna þá miklu yfirvegun og einbeitni sem ríkti í samhæfingarmiðstöðinni í nótt, en ekki síður þá djúpu umhyggju sem einkenndi þar öll störf. Kærleikurinn til þeirra sem áttu í hlut var nánast áþreifanlegur.“
Þorgerður Katrín segir mikið björgunarafrek hafa verið unnið við afar erfiðar aðstæður og þakkar öllum þeim sem komu að björgunaraðgerðunum.
„Sjómennirnir sem komu félögum sínum til bjargar sýndu sömuleiðis einstakt hugrekki.“
Mikil umræða hefur skapast um þyrlukost Landhelgisgæslunnar í kjölfar slyssins og hafa margir kallað eftir úrbótum.
Þorgerður Katrín segir að fjölgun þyrlna hafi verið til alvarlegrar skoðunar hjá ríkisstjórninni.
„Ríkisstjórnin hefur frá upphafi kjörtímabilsins lagt ríka áherslu á að efla Landhelgisgæsluna og hefur fjölgun þyrlna verið til alvarlegrar skoðunar. Við munum hraða þeirri vinnu eins og kostur er og erum staðráðin í að koma fjórðu þyrlunni í gagnið.“
Ekki kemur fram í færslu ráðherrans hvenær stefnt er að því að fjórða þyrlan verði tekin í notkun eða hvernig rekstur hennar verður fjármagnaður.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗