Egill segir okkur þurfa að líta í eigin barm: „Þetta eru mál sem við gefum sjaldnast gaum“

Egill Helgason fjölmiðlamaður rifjar upp þá tíma þegar fréttir af mannskæðum sjóslysum voru tíðar á Íslandi í færslu á Facebook í dag. Hann kveðst snortinn af frásögnum af björgunarafrekinu í gærkvöldi þegar Jökull ÞH fórst en hvetur jafnframt til yfirvegaðrar umræðu um tækjakost Landhelgisgæslunnar.

„Við sem erum eldri en tvævetur munum þá tíma þegar voru eilífar fréttir af sjóslysum og sjómönnum sem fórust,“ segir Egill og bendir á að í öllum sjávarplássum hafi verið konur sem höfðu misst eiginmenn sína og börn sem höfðu misst feður sína.

Miklar framfarir hafi orðið í öryggismálum sjómanna á undanförnum áratugum og sjóslys sem betur fer orðin fátíð.

Sjá einnig: Þyrluflugmaður Gæslunnar til 30 ára er ómyrkur í máli: „Mögulega eiga þessi skrif eftir að kosta mig vinnuna“

„En hættan er alltaf til staðar eins og við upplifum nú þegar Jökull ÞH ferst á dimmu vetrarkvöldi í ólgusjó.“

Kemst við að heyra lýsingarnar

Egill segir frásagnir af störfum björgunarfólksins hjartnæmar, ekki síst lýsingar á því hvernig það hélt sambandi við skipverjana í sjónum, talaði í þá kjark og fullvissaði þá um að hjálp væri á leiðinni.

„Maður kemst við að heyra þessar lýsingar.“

Egill víkur síðan að umræðunni sem skapast hefur um þyrlu- og tækjakost Landhelgisgæslunnar.

„Svo rjúka menn upp í deilur um hvort þyrlu- og tækjakostur Landhelgisgæslunnar sé nægur. Svo er sjálfsagt ekki. En við skulum nálgast þær spurningar af alvöru – ekki með upphlaupum.“

Sjá einnig: Sorg, reiði og áleitnar spurningar eftir sjóslysið fyrir austan - „Það fýkur í mig“

Hann bendir á að almenningur gefi þessum málum sjaldnast mikinn gaum.

„Séu þessi mál í ólagi er að sumu leyti við okkur öll að sakast – allavega flest – því þetta eru mál sem við gefum sjaldnast gaum, og þá ekki fyrr en í harðbakkann slær.“

Fólk beið með öndina í hálsinum

Færsla Egils hefur vakið viðbrögð og rifjar ein kona upp hvernig ástandið var þegar hún var ung og átti nána ættingja á sjó í litlu sjávarþorpi.

„Í hvert sinn sem veður versnaði biðu allir þorpsbúar með öndina í hálsinum þar til allir bátar voru komnir inn.“

Á mörgum heimilum hafi þá verið skipt af Ríkisútvarpinu yfir á bátabylgjuna og hlustað á samskipti sjómanna sín á milli og við fólk í landi.

Konan segir miklar framfarir í öryggismálum hafa orðið til þess að harmleikir á borð við þann sem varð í gær slái þjóðina enn harðar en áður.

Fleiri benda á mikilvægi þess starfs sem unnið hefur verið í Slysavarnaskóla sjómanna í gegnum tíðina og minna á að ekki megi gleyma þætti skipverjanna sjálfra í björgunarafrekinu.

„Hetjur gærdagsins eru björgunaraðilar en ekki síður áhöfnin sjálf!“ segir ein þeirra sem tjáir sig við færslu Egils.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab