Minnast skipverjanna fyrir leik
Mínútu þögn verður fyrir leik Íslands og Bosníu í undankeppni HM karla í körfubolta í Laugardalshöll í kvöld til minningar um þrjá skipverja sem fórust með Jökli ÞH í gær.
Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, staðfesti þetta við Vísi. Alþjóðakörfuknattleikssambandið, FIBA, hefur veitt leyfi fyrir minningarstundinni.
Jökull sökk austur af Íslandi í gærkvöldi. Fjórtán skipverjum var bjargað en þeirra þriggja sem létust verða minnst.
Leikurinn hefst klukkan 19:30. Ísland þarf á sigri að halda til að halda vonum um að komast í fyrsta sinn á HM á lífi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗