Útgerð Jökuls harmi slegin - „Það er erfitt að finna viðeigandi orð á stundu sem þessari“

Útgerðarfyrirtækið GPG Seafood á Húsavík sem gerði út fiskiskipið Jökul sem sökk í gær, með þeim afleiðingum að 3 af 17 manna áhöfn létust, hefur sent frá sér yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni. Skipið var gert út frá Raufarhöfn og mun hafa verið á grálúðuveiðum þegar það sökk um 60 sjómílur austur af Glettingi. 

Yfirlýsing GPG Seafood fer hér á eftir í heild sinni:

„Það er erfitt að finna viðeigandi orð á stundu sem þessari. Þau virðast máttvana. Útgerð Jökuls er lítil og atburðir gærkvöldsins snerta okkur öll djúpt. Hugur okkar er hjá skipverjum, fjölskyldum og öðrum aðstandendum. Fyrirtækið mun gera allt sem í þess valdi stendur til að aðstoða þau sem eiga um sárt að binda og veita alla þá aðstoð sem unnt er.“  

„Björgunaraðilar unnu þrekvirki í gærkvöldi við mjög krefjandi aðstæður. Við færum öllum sem komu að málum okkar innilegustu þakkir.“   

„Margar spurningar vakna við atburð sem þennan. Við vonum að því verði sýndur skilningur að erfitt getur verið að svara þeim öllum svo skömmu eftir að hann gerist. Umfram allt þurfum við nú að hlúa að okkar fólki og þeim sem syrgja ástvini.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab