Ýmir verður ekki með í landsleikjunum
Ýmir Örn Gíslason verður ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM í handbolta.
Þetta staðfesti Ýmir í samtali við RÚV en hann var viðstaddur æfingu íslenska liðsins í Safamýrinni í dag.
Ýmir hefur ekkert leikið með Göppingen í Þýskalandi á tímabilinu eftir að hafa gengist undir handaraðgerð í sumar.
Hann er nú staddur hér á landi til að fara í frekari skoðun og vonast til að fá skýrari mynd af stöðunni og tímaramma endurhæfingarinnar síðar í dag eða á morgun, samkvæmt RÚV.
Ísland mætir Úkraínu í Laugardalshöllinni á miðvikudaginn og leikur síðan gegn Eistlandi á útivelli á sunnudaginn.
Leikirnir eru liður í undankeppni Evrópumótsins 2028 en íslenska liðið mun væntanlega einnig nýta þá sem undirbúning fyrir HM sem hefst í Þýskalandi í janúar á næsta ári.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗