Skert starfsemi á heilbrigðisstofnunni eftir slysið
Innlent | mbl | 26.11.2026 | 11:22
Mikið álag hefur verið á Heilbrigðisstofnun Austurlands sl. sólarhring. mbl.is/Skúli Björn Gunnarsson
Starfsemi á Heilbrigðisstofnun Austurlands verður með takmörkuðu sniði í dag vegna álags sem hefur verið síðastliðinn sólarhring. Skipið Jökull ÞH fórst austur af landinu í gær og létust þrír menn. Fjórtán manns var bjargað.
Í tilkynningu heilbrigðisstofnunarinnar segir að bráðaþjónusta verði tryggð. Þjónustan verði takmörkuð til að tryggja starfsfólki nauðsynlegan hvíldartíma.
Unnið sé að endurskipulagningu og er fólk beðið um að taka vel í þær breytingar sem kunna að verða á fyrirhugaðri þjónustu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗