Þurfum umfram allt að hlúa að okkar fólki
„Það er erfitt að finna viðeigandi orð á stundu sem þessari. Þau virðast máttvana,“ segir í tilkynningu GPG Seafood á Facebook rétt í þessu.
GPG Seafood gerði út Jökul ÞH sem sökk úti fyrir Austurlandi í gærkvöldi. Þrír úr áhöfn skipsins fórust í slysinu og fjórtán var bjargað.
„Útgerð Jökuls er lítil og atburðir gærkvöldsins snerta okkur öll djúpt. Hugur okkar er hjá skipverjum, fjölskyldum og öðrum aðstandendum,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Fram kemur að fyrirtækið muni gera allt sem í þess valdi stendur til að aðstoða þau sem eiga um sárt að binda og veita alla þá aðstoð sem unnt er.
„Björgunaraðilar unnu þrekvirki í gærkvöldi við mjög krefjandi aðstæður. Við færum öllum sem komu að málum okkar innilegustu þakkir.“
Um leið er ávarpað að margar spurningar vakni við atburð sem þennan.
„Við vonum að því verði sýndur skilningur að erfitt getur verið að svara þeim öllum svo skömmu eftir að hann gerist. Umfram allt þurfum við nú að hlúa að okkar fólki og þeim sem syrgja ástvini.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗