Nýir tollar Trumps vekja hörð viðbrögð

Tollarnir gætu hleypt nýju lífi í viðskiptadeilur Bandaríkjanna við bæði bandamenn og andstæðinga. AFP

Stór hagkerfi á borð við Kína og Evrópusambandið hafa gagnrýnt harðlega fyrirhugaða tolla Bandaríkjanna í kjölfar margra mánaða rannsóknar bandarískra stjórnvalda á meintri umframframleiðslu.

Tollarnir gætu hleypt nýju lífi í viðskiptadeilur Bandaríkjanna við bæði bandamenn og andstæðinga.

Fyrirhugaðir tollar nema allt að 20% en rannsóknin hófst nokkrum dögum eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna ógilti fyrri tolla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Tillögurnar verða lagðar fram til opinberrar umsagnar og gætu tollarnir tekið gildi í fyrsta lagi í janúar.

Tollarnir beinast að nokkrum af stærstu viðskiptaaðilum Bandaríkjanna, þar á meðal Kína, Evrópusambandinu, Indlandi, Bangladess, Kambódíu, Indónesíu, Japan, Suður-Kóreu, Malasíu, Singapúr, Sviss, Taívan, Taílandi og Víetnam.

Háttsettur bandarískur embættismaður, sem ræddi við fjölmiðla undir nafnleynd, sagði að við mótun tillagnanna hefði verið leitast við að taka tillit til gildandi viðskiptasamninga.

Kínverjar vara við mótaðgerðum

Kína er á meðal þeirra ríkja sem eiga yfir höfði sér 20% tolla. Jamieson Greer, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, sagði þó að fyrirhugaðir tollar væru innan þess ramma sem markaður hefði verið í viðskiptaviðræðum ríkjanna.

„Kínverjar gera sér grein fyrir því að við munum leggja á einhverja tolla. Þetta er í samræmi við þann skilning,“ sagði hann í samtali við bandarísku sjónvarpsstöðina CNBC.

Hann bætti við að Bandaríkin byðu Kínverjum undanþágur frá tollum á vörum að andvirði um 30 milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar um 3.764 milljörðum íslenskra króna.

Kínversk stjórnvöld gagnrýndu fyrirhugaða tolla í dag og vöruðu við því að þau kynnu að grípa til „nauðsynlegra ráðstafana til að verja með festu lögmæt réttindi sín og hagsmuni“.

He Yadong, talsmaður kínverska viðskiptaráðuneytisins, sagði á blaðamannafundi að ásakanir um umframframleiðslu væru notaðar sem yfirvarp fyrir verndarstefnu.

Með umframframleiðslu er í þessu samhengi átt við að vörur séu fjöldaframleiddar, jafnvel með tapi, til að flæða yfir erlenda markaði og undirbjóða framleiðendur á þeim.

He hvatti bandarísk stjórnvöld til að láta af röngum starfsháttum sínum og leysa ágreiningsmál á ný með viðræðum og samráði.

Kína er á meðal þeirra ríkja sem eiga yfir höfði sér 20% tolla. Jamieson Greer, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, sagði þó að fyrirhugaðir tollar væru innan þess ramma sem markaður hefði verið í viðskiptaviðræðum ríkjanna. AFP

Evrópusambandið hafnar forsendum tollanna

Japönsk stjórnvöld höfnuðu því, líkt og stjórnvöld fleiri ríkja, að um umframframleiðslu væri að ræða í landinu.

„Í Japan er hvorki fylgt stefnu sem gengur gegn markaðslögmálum né er þar viðvarandi umframframleiðslugeta. Það er miður að þrátt fyrir þetta hafi verið kynntar tillögur að aðgerðum sem beinast að Japan,“ sagði Minoru Kihara, aðaltalsmaður japanskra stjórnvalda.

Evrópusambandið hafnaði forsendum nýju tollanna og kvaðst ætlast til þess að Bandaríkin stæðu við viðskiptasamninginn sem gerður var á síðasta ári.

„Evrópusambandið og Bandaríkin hafa bæði raunverulegar áhyggjur af umframframleiðslu á heimsvísu, sem að stórum hluta er til komin vegna aðgerða stjórnvalda og er einkum bundin við ríki utan Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Við hörmum að ekki hafi verið gripið til sameiginlegra aðgerða,“ sagði Olof Gill, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Stjórnvöld í Singapúr lýstu yfir miklum vonbrigðum með tillögurnar og höfnuðu því að þau beittu verndaraðgerðum á heimamarkaði eða niðurgreiddu iðnaðarframleiðslu.

Tollar að jafnaði ekki hærri en 15%

Víetnam á einnig yfir höfði sér 20% tolla, Kambódía og Indónesía 18% tolla og Indland 17% tolla, samkvæmt upplýsingum frá embætti viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna.

Samkvæmt tillögunum verða tollar á vörur frá Evrópusambandinu, Suður-Kóreu og Taívan, sem öll hafa gert viðskiptasamninga við Bandaríkin, að jafnaði ekki hærri en 15%.

Í sérstakri tilkynningu lagði viðskiptafulltrúinn einnig til að viðbótartollar yrðu lagðir á vörur frá Brasilíu, þar á meðal flugvélar. Ástæðan er sú að brasilísk stjórnvöld hafa að mati Bandaríkjamanna ekki brugðist við athugasemdum þeirra í viðskiptamálum.

Skrifstofa forseta Brasilíu sagði aðgerðirnar óásættanlegar og að brasilísk stjórnvöld myndu ekki láta undan hótunum af þessu tagi.

Tollar Trumps hafa beinst að bæði bandamönnum og andstæðingum Bandaríkjanna. Þeir eru liður í viðleitni hans á öðru kjörtímabili sínu til að umbylta alþjóðaviðskiptum með því að knýja önnur ríki til að kaupa bandarískar vörur eða færa framleiðslu sína til Bandaríkjanna.

Að sögn háttsetta bandaríska embættismannsins ná áhyggjur af umframframleiðslu til fjölmargra atvinnugreina, meðal annars framleiðslu rafhlaðna, sements og efnavara, auk matvælavinnslu.

Í júlí lagði Trump sérstaka tolla á vörur frá 60 hagkerfum og sakaði stjórnvöld þar um að hafa ekki gripið til fullnægjandi aðgerða gegn nauðungarvinnu. AFP

Neytendur gætu þurft að bera kostnaðinn

Nýju tollarnir gætu aukið enn á þrýsting á bandarísk fyrirtæki sem þegar finna fyrir áhrifum fyrri tollaaðgerða. Auknar líkur eru á því að fyrirtækin velti kostnaðinum yfir á neytendur sem þegar eru óánægðir með háan framfærslukostnað.

Framfærslukostnaður var eitt helsta kosningamálið í þingkosningunum í Bandaríkjunum fyrr í þessum mánuði, þegar Repúblikanaflokkur Trumps missti meirihluta sinn í báðum deildum Bandaríkjaþings til demókrata.

Tilkynningin um fyrirhugaða tolla kom á sama tíma og nýjar tölur sýndu að verðbólga í október, samkvæmt þeim mælikvarða sem bandaríski seðlabankinn horfir helst til, hefði ekki verið meiri í þrjú ár. Það eykur þrýsting á seðlabankann um að hækka stýrivexti.

Ryan Majerus, lögmaður sem sérhæfir sig í viðskiptarétti, sagði í samtali við AFP-fréttastofuna að hann teldi rannsóknina á umframframleiðslu verða á meðal mikilvægustu aðgerða ríkisstjórnar Trumps.

Að baki rannsókninni lægju áhyggjur af því að verksmiðjur með umframframleiðslugetu væru settar á fót erlendis og framleiðslu þeirra væri aldrei hætt, jafnvel þótt engin eftirspurn væri eftir vörunum.

Þetta gæti að hans sögn leitt til offramboðs á vörum, verðlækkana og þess að grafið yrði smám saman undan bandarískum framleiðsluiðnaði.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab