Eigið fé Seðlabankans að þverra

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Eyþór/Karítas

Eigið fé Seðlabankans var 77 milljarðar króna í lok síðasta árs, en hefur minnkað töluvert á þessu ári og var í október líklega í námunda við 18 milljarða. Til samanburðar er eiginfjármarkmið Seðlabankans 150 milljarðar króna.

Auknar líkur eru því taldar á að Seðlabankinn kalli inn eiginfjárframlag frá ríkissjóði að mati fjármálaráðherra.

Þetta er meðal þess sem lesa má í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem sent var á fjárlaganefnd vegna vinnu við fjárlög næsta árs.

„Mikil óvissa umlykur það hvort og hvenær Seðlabankinn kallar eftir eiginfjárframlagi frá ríkissjóði og hvernig slíkt framlag yrði útfært,“ segir í minnisblaðinu.

Ekki gert ráð fyrir framlagi í fjárlögum

Vísað er til þess að ráðherra og Seðlabankanum sé heimilt að gera með sér samkomulag um framkvæmd eiginfjárframlags, en samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands er ríkissjóði skylt að leggja bankanum til eigið fé í formi markaðshæfra eigna, ef bankinn kallar eftir því og telur það nauðsynlegt til að uppfylla lágmarkskröfur um innborgað eigið fé.

„Í ljósi þessarar óvissu er ekki gert ráð fyrir í forsendum fjárlagafrumvarpsins, nú frekar en áður, að bankinn kalli eftir slíku framlagi. Hins vegar er í forsendum fjárlagafrumvarpsins, eins og undanfarin ár, heimild samkvæmd 5. gr. til að taka lán allt að 84 ma.kr. til fjármögnunar á eigin fé Seðlabanka Íslands verði eftir því kallað,“ segir að í minnisblaðinu.

Hætti að greiða ríkissjóði vexti af erlendum innistæðum árið 2024

Minnisblaðið er með fyrirsögnina „Vaxtatekjur af erlendum innstæðum ríkissjóðs“ en þar kemur fram að frá árinu 2024 hafi Seðlabankinn ekki greitt ríkissjóði vaxtatekjur af innistæðum sínum. Nú sé hins vegar gert ráð fyrir því að ríkissjóður fái 6,5 milljarða vexti af þeim innistæðum, en þær nema 300 milljörðum.

Er í minnisblaðinu sagt að ráðstöfun Seðlabankans að hætta að greiða vexti valdi ógagnsæi í ríkisfjármálum þar sem þetta bætir afkomu bankans á kostnað ríkissjóðs. „Kostnaður af ráðstöfun opinbers fjár þarf að koma skýrt fram í reikningum ríkissjóðs, jafnvel þótt hann sé reiknaður fremur en greiddur með beinum hætti,“ segir í minnisblaðinu

Tekið er fram að málið eigi sér nokkurn aðdraganda og eigi að skoðast í því ljósi fremur en í samhengi við markmið stjórnvalda um hallalaus fjárlög.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab