Segir ýmsar upplýsingar ekki eiga sér stoð
Rafræn þjónustukerfi Reykjavíkurborgar voru tekin úr sambandi í varúðarskyni í kjölfar netárásarinnar. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir
Búið er að komast fyrir netárásina sem gerð var á tölvukerfi Reykjavíkurborgar í gær og stendur greiningarvinna nú yfir. Vonir standa til þess að hægt verði að byrja að opna aftur fyrir rafræna þjónustu borgarinnar í dag.
Þetta segir Óskar Jörgen Sandholt, sviðsstjóri þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar, í samtali við mbl.is.
Óskar var á leið á reglubundinn stöðufund vegna árásarinnar þegar blaðamaður náði tali af honum í morgun.
Eins og greint var frá í gær var fjöldi rafrænna þjónustukerfa borgarinnar tekinn tímabundið úr sambandi í kjölfar árásarinnar.
Segir ýmsar upplýsingar ekki eiga sér stoð
Spurður hvort hann geti staðfest upplýsingar heimildarmanna RÚV um að árásaraðilar hafi komist yfir lykilorð og inn í gagnagrunn borgarinnar kveðst Óskar ekki geta það.
„Það eru mjög margar upplýsingar þarna sem eiga sér ekki stoð,“ segir hann og vísar til ágiskana eða upplýsinga frá heimildarmönnum sem séu ekki með réttar upplýsingar.
Ekki sé tímabært að veita frekari upplýsingar um umfang árásarinnar að svo stöddu. Greiningarvinnan taki tíma.
Vonast til að geta opnað í dag
Í tilkynningu borgarinnar í gær kom fram að gera mætti ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu næstu daga.
Óskar áréttar að rafræn þjónustukerfi borgarinnar hafi verið tekin úr sambandi í varúðarskyni. Opnað verði aftur fyrir þjónustuna í áföngum eftir því sem gengið hefur verið úr skugga um öryggi kerfanna.
„Við eigum alveg von á því að geta byrjað að opna í dag,“ segir Óskar en tekur fram að hann geti ekki staðfest það að svo stöddu.
Borgin muni veita frekari upplýsingar um leið og þær liggja fyrir.
Netógn farið vaxandi
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og netöryggissveitin CERT-IS virkjuðu í gær viðbragðsáætlun um verndun ómissandi upplýsingainnviða á óvissustigi almannavarna vegna aukinnar notkunar gervigreindar við netárásir.
Magni Reynir Sigurðsson, forstjóri CERT-IS, sagði í samtali við mbl.is í gærkvöldi að ákveðin líkindi væru með netárásunum á Reykjavíkurborg og Bláa lónið og að netógnin hefði farið stigvaxandi á undanförnum vikum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/74/1687425.jpg)
