Setur kostnaðinn við fjórðu þyrluna í athyglisvert samhengi - „Það er mikið bolmagn í íslensku samfélagi“

Guðmundur Hrafn Arngrímsson fyrrum formaður Leigjendasamtakanna færir rök fyrir því í athyglisverðum Facebook-pistli að nægir peningar séu til í landinu til að bæta við nýrri þyrlu í flota Landhelgisgæslunnar. Kostnaðurinn sé lítið brot af til að mynda af hagnaði bankanna og tekjum fjármagnseigenda.

Eins og alþjóð veit sökk fiskiskipið Jökull í gær um 60 sjómílur austur af Glettingi. Af 17 manna áhöfn létust 3 en 14 var bjargað. Af þremur björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar var aðeins ein til taks, en hinar tvær voru bilaðar, og þykir áhöfn hennar hafa unnið mikið þrekvirki. Ljóst er þó að sú staðreynd að önnur þyrla var ekki til reiðu gerði björgunarstörfin þeim mun erfiðari. Gagnrýnisraddir eru nú þegar farnar að heyrast og kallað er eftir því að fjórðu þyrlunni verði bætt við án tafar. Ráðherrar segja að vinna að því hafi þegar verið hafin en henni verði nú hraðað.

Guðmundur Hrafn segir í sínum pistli að árlegur kostnaður fyrir leigu og rekstur á nýrri björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna sé 1.1 milljarður króna. Hann setur síðan þennan kostnað í samhengi:

„Hagnaður bankanna í fyrra var 93.2 milljarðar, arðgreiðslur 47.1 milljarður. Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja var 64 milljarðar og arðgreiðslur 17 milljarðar. Bara arðgreiðslur þessarar tveggja greina til eigenda fyrirtækjanna á einu ári svarar til leigu og reksturs nýrrar björgunaþyrlu í 58 ár, ~58 ár!“

„Að auki var hagnaður af fjármagnstekjum aðeins 10 einstaklinga samtals 15 milljarðar árið 2025. Það er mikið bolmagn í íslensku samfélagi til að hafa alla innviði í toppstandi, en stjórnvöld undanfarinna áratuga hafa tekið þann pól í hæðina að auður fárra einstaklinga sé mikilvægari en heill þjóðar.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab