Skipverjar og aðstandendur fengu sálrænan stuðning - „Mörg eiga um sárt að binda vegna slyssins“
Sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins buðu skipverjum af Jökli ÞH og aðstandendum þeirra sálrænan stuðning í gærkvöldi og nótt. Fram kemur í tilkynningu að hjálparsími Rauða krossins 1717 hafi verið virkjaður sem upplýsingasími almannavarna og þar voru aðstandendum veittar upplýsingar um framvindu björgunaraðgerða meðan á þeim stóð.
Sjá einnig: „Við gátum séð þá einn af öðrum stökkva í sjóinn“
Aðstandendum var einnig boðið að safnast saman í húsnæði útgerðarinnar á Húsavík sem og í höfuðstöðvum Rauða krossins í Reykjavík. Þar tóku sjálfboðaliðar úr viðbragðshópum Rauða krossins á móti fólki ásamt fulltrúum annarra viðbragðsaðila.
Hjálparsími Rauða krossins 1717 er opinn allan sólarhringinn og þangað geta allir leitað og fengið stuðning, hlustun og ráðgjöf. „Mörg eiga um sárt að binda vegna slyssins og sömuleiðis geta svona alvarlegir atburðir ýft upp gömul sár,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri hjá Rauða krossinum. „Við hvetjum þau sem óska aðstoðar og stuðnings að hafa samband við 1717, hvort sem það eru ástvinir skipverjanna, þau sem komu að björgunaraðgerðunum eða aðrir sem finna til vanmáttar eða vanlíðunar vegna slyssins.“
Áfallahjálp stendur aðstandendum og skipverjunum áfram til boða hjá Rauða krossinum og víðar. Þjóðkirkjan mun bjóða öllum þeim sem þess óska að fá samtal frá presti eða djákna, með því að senda erindi á afallahjalp@kirkjan.is. Einnig er hægt að leita heilsugæslu í síma 1700 og félagsþjónustu sveitarfélaga.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗