Hafró frestar málþingi vegna sjóslyss
Afmælismálþingi Hafrannsóknastofnunar sem átti að fara fram eftir hádegi í dag hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Í tilkynningu kemur fram að þetta hafi verið gert í ljósi nýlegra tíðinda.
Til stóð að í tilefni af tíu ára afmæli Hafrannsóknastofnunar í núverandi mynd færi fram málþing í starfsstöð stofnunarinnar að Fornubúðum í Hafnarfirði.
Eins átti að fagna fleiri tímamótum, líta um öxl og fræðast um vörður fortíðar um leið og horft yrði til framtíðar í pallborðsumræðum.
Sjá má fyrirhugaða dagskrá ráðstefnunnar á myndinni hér fyrir neðan.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
