Veittu skipverjum og aðstandendum sálrænan stuðning

„Við hvetjum þau sem óska aðstoðar og stuðnings að hafa samband við 1717, hvort sem það eru ástvinir skipverjanna, þau sem komu að björgunaraðgerðunum eða aðrir sem finna til vanmáttar eða vanlíðunar vegna slyssins,“ segir í tilkynningunni. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins buðu skipverjum af Jökli ÞH og aðstandendum þeirra sálrænan stuðning í gærkvöldi og nótt.

Áfallahjálp stendur skipverjunum og aðstandendum þeirra áfram til boða en Rauði krossinn hvetur jafnframt aðra sem finna til vanlíðanar vegna sjóslyssins til að leita sér stuðnings.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum.

Hjálparsími Rauða krossins, 1717, var virkjaður sem upplýsingasími almannavarna og fengu aðstandendur þar upplýsingar um framvindu björgunaraðgerðanna meðan á þeim stóð.

Aðstandendum var einnig boðið að koma saman í húsnæði útgerðarinnar á Húsavík og í höfuðstöðvum Rauða krossins í Reykjavík. Þar tóku sjálfboðaliðar úr viðbragðshópum Rauða krossins á móti fólki ásamt fulltrúum annarra viðbragðsaðila.

Geta ýft upp gömul sár

„Mörg eiga um sárt að binda vegna slyssins og sömuleiðis geta svona alvarlegir atburðir ýft upp gömul sár,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri hjá Rauða krossinum, í tilkynningunni.

Hjálparsími Rauða krossins er opinn allan sólarhringinn og þar geta allir fengið stuðning, hlustun og ráðgjöf.

„Við hvetjum þau sem óska aðstoðar og stuðnings að hafa samband við 1717, hvort sem það eru ástvinir skipverjanna, þau sem komu að björgunaraðgerðunum eða aðrir sem finna til vanmáttar eða vanlíðunar vegna slyssins.“

Auk Rauða krossins er hægt að leita til heilsugæslunnar í síma 1700 og til félagsþjónustu sveitarfélaga. Þá er einnig hægt að leita til þjóðkirkjunnar með því að senda tölvupóst á [email protected].

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab