Gagnaöflun og frumrannsókn hafin vegna slyssins

Jón Pétursson hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa mun fara með rannsókn á því sem gerðist í sjóslysinu fyrir austan í gærkvöldi þar sem þrír skipverjar á Jökli ÞH fórust en 14 var bjargað.

„Nú er bara gagnaöflun og frumrannsókn í gangi. Raunverulega get ég ekki sagt neitt meira á þessu stigi,“ segir Jón Pétursson, rannsóknarstjóri á siglingasviði hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa, aðspurður.

Hann segir að verið sé að afla upplýsinga og að ekki sé búið að taka nein viðtöl.

Jökull ÞH var smíðaður í Noregi árið 1996.

Jökull ÞH var smíðaður í Noregi árið 1996. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Þrír rannsakendur að störfum 

Við frumrannsóknina eru þrír rannsakendur frá rannsóknarnefndinni að störfum.

„Þeir voru í rauninni í starholunum frá því að við fréttum af slysinu. Þá fer af stað hjá okkur ákveðið ferli.“

Spurður kveðst hann ekkert geta sagt til um hvenær rannsóknarnefndin viti meira um það sem gerðist þegar skipið sökk.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab