„Töluðu líf í þessa menn“
Skipverjarnir á Jökli voru í rúmar fjórar klukkustundir í sjónum. Landhelgisgæslan var í beinu sambandi við þá á meðan þeir biðu björgunar. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir Gæsluna aldrei áður hafa verið í slíku beinu sambandi við fólk sem berst fyrir lífi sínu í sjónum og við björgun skipverjanna á Jökli austur af landi í gær.
Hann lýsti því hvernig varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hughreystu skipverjana, gáfu þeim ráð og héldu voninni lifandi á meðan þeir biðu björgunar.
„Þetta var ótrúlegt og átakanlegt oft og tíðum,“ sagði Georg og lýsti því hvernig varðstjórarnir „raunverulega töluðu líf í þessa menn“.
Þetta kom fram á blaðamannafundi í ráðherrabústaðnum í morgun. Þrír skipverjar á Jökli létust í slysinu en fjórtán var bjargað.
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, lýsti samskiptunum við skipverjana sem ótrúlegum og átakanlegum. mbl.is/Karítas
Fluttu þeim bjartsýnar fréttir
Georg sagði varðstjórana hafa verið „með góðar ábendingar hvernig menn áttu að bera sig að til að lifa þetta af“.
Varðstjórarnir hefðu jafnframt sífellt flutt skipverjunum bjartsýnar fréttir af komu flugvélar, þyrlu og skipa á vettvang.
Georg taldi samskiptin hafa skipt verulegu máli við björgun skipverjanna.
Viðhéldu baráttuþreki skipverjanna
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók undir orð Georgs en hún hlustaði á samskiptin við skipverjana í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi.
Hún lýsti hughreystingar- og huggunarorðum varðstjóranna og nefndi að skipverjunum hefði meðal annars verið greint frá því hversu langt væri í þyrluna.
„Það er bókstaflega verið að tala von og líf í þessa menn og ég er algjörlega sannfærð um það að þetta hafi haft úrslitaáhrif. Það tókst að viðhalda baráttuþreki með þessu,“ sagði Þorbjörg Sigríður.
Tók handtalstöð með sér í sjóinn
Skipstjóri Jökuls náði að taka með sér handtalstöð þegar hann yfirgaf skipið og var að sögn Georgs í sambandi við Landhelgisgæsluna meira og minna allan tímann eftir það.
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-Sif, var fyrst á vettvang og sagði Georg komu hennar hafa skipt sköpum.
Áhöfn flugvélarinnar gat verið í sambandi við skipstjórann auk þess sem skipverjarnir í sjónum sáu flugvélina og heyrðu í henni.
Georg sagði viðhorf skipverjanna hafa gjörbreyst þegar þeir áttuðu sig á því að fylgst væri með þeim.
Þorbjörg Sigríður sagði jafnframt hafa mátt heyra breytingu á samskiptunum þegar skipverjarnir áttuðu sig á því að hjálpin væri komin.
Sýndu einstaka þrautseigju
Skipverjarnir voru í rúmar fjórar klukkustundir í sjónum. Georg sagði þá hafa sýnt einstaka þrautseigju og útsjónarsemi. Þeir hefðu bundið sig saman og nýtt þá reynslu og þekkingu sem þeir höfðu öðlast í Slysavarnaskóla sjómanna.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lagði einnig áherslu á mikilvægi samskiptanna við skipverjana á fundinum.
Hún sagði ekki mega gleyma að þakka þeim sem voru í beinu sambandi við skipverjana og áhöfn flugvélarinnar. Þau hefðu gefið skipverjunum von.
„Þeir voru þarna til staðar fyrir skipverjana, gátu verið í samskiptum við þá. Þannig að þetta er heill hópur af fólki sem vinnur þarna saman,“ sagði Kristrún.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
