Bruno skoraði ótrúlegt mark – Bjó sjálfur til holuna sem hjálpaði honum
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, skoraði eitt sérkennilegasta mark Meistaradeildarinnar í gær þegar United gerði 2-2 jafntefli gegn Sporting í Portúgal.
Portúgalinn skoraði bæði mörk United gegn sínum gömlu félögum en seinna markið kom með afar óvenjulegum hætti.
Bruno lét vaða fyrir utan vítateiginn en boltinn lenti í holu á vellinum og breytti skyndilega um stefnu. Kaique Pereira, markvörður Sporting, átti enga möguleika og boltinn hafnaði í þaknetinu.
Það sem gerir atvikið enn skemmtilegra er að Bruno hafði sjálfur búið til holuna aðeins nokkrum sekúndum áður.
Myndskeið frá TNT Sports sýnir hvernig Portúgalinn sparkar óvart upp torfu af vellinum í aðdraganda marksins.
Markið hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum þar sem stuðningsmenn hafa gert góðlátlegt grín að heppni fyrirliðans.
„Þetta er heppnasta mark sem þú munt nokkurn tímann sjá,“ skrifaði einn stuðningsmaður.
Þrátt fyrir heppnina dugðu mörk Bruno ekki til sigurs þar sem Sporting náði að tryggja sér stig.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗