Njáll Trausti vill fá starfsstöð og þyrlu til Akureyrar

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 11:08

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Samsett mynd/Sjálfstæðisflokkurinn

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ítrekar að koma þurfi upp starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Á blaðamannafundi í morgun kom fram að ríkisstjórnin hygðist flýta vinnu við að útvega fjórðu þyrlu Landhelgisgæslunnar í kjölfar sjóslyssins austur af landi. Í sjóslysinu fyrir utan Austurland létust þrír sjómenn, það tókst að bjarga fjórtán skipverjum. 

Sjá einnig: „Við gátum séð þá einn af öðrum stökkva í sjóinn“

„Það var þungt að taka til máls rétt eftir að þær hörmulegu fréttir bárust að þrír sjómenn hefðu farist þegar Jökull sökk í gær, 60 sjómílur austur af Glettingi. Ég sendi fjölskyldum og aðstandendum sjómannanna sem fórust og félögum þeirra í áhöfn Jökuls mínar dýpstu samúðarkveðjur. Hugur minn er hjá ykkur á þessari erfiðu stundu,“ segir Njáll Trausti í færslu á Facebook. 

Sjá einnig: „Það má segja að hann hafi þverbrotið allar reglur og það ætti kannski að áminna hann“

Njáll Trausti ræddi um málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

„Auðvitað hugsar maður um það sem maður er búinn að vera að tala um síðustu ár, núna í tíu ár á þingi. Ég hef verið að benda á að styrkja gæsluna og þá sérstaklega þyrluhlutann á austurhluta landsins. Á Akureyri eru bestu skilyrðin, það er infrastrúkúr og sjúkrahús, sjúkraflugið venjulega er þar. Þar er mannskapur, flugvirkjar og annað, að koma upp starfsstöð gæslunnar þar,“ segir Njáll. Það myndi stórbæta getu Landhelgisgæslunnar að bregðast við á austurhluta landsins.

„Ég byrjaði að tala um þetta vorið 2017 í sérstakri umræðu á þinginu og síðasta árið hef ég verið með mál um þetta.“

Hann var spurður hvort það væri til of mikils ætlast að vera með björgunarþyrlu í hverjum landshluta. „Það er mikill rekstur að reka björgunarþyrlu. Þetta er mjög flókinn rekstur og það þarf mjög margt að ganga saman til að geta rekið starfsstöð með stórri björgunarþyrlu. Þetta eru 11-12 tonna björgunarþyrlur sem gæslan er að reka og geta flogið 200 sjómílur út frá ströndum landsins,“ segir Njáll, forsendan er að ein slík þyrla geti sótt hálfa áhöfn frystitogara, um tíu manns. Fyrsta skrefið sé að koma þyrlu til Akureyrar. 

„Auðvitað getum við til lengri tíma styrkt þetta enn frekar með því að setja þetta á fleiri horn landsins.“ Þá megi einnig styrkja betur samstarfið við aðrar þjóðir. 

Hér má hlusta á viðtalið í heild. 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab