Sá eini sem tapar á því er ég

Alfons Sampsted, lengst til vinstri.

Alfons Sampsted, lengst til vinstri. Ljósmynd/Alex Nicodim

„Það er bara að halda áfram, halda áfram, halda áfram og á endanum uppsker maður,“ sagði Alfons Sampsted, knattspyrnumaður hjá Go Ahead Eagles í Hollandi, í samtali við Morgunblaðið.

Alfons var spurður hvernig honum hefði gengið að takast á við mótlæti á ferlinum, meðal annars þegar spilatíminn hjá Birmingham var takmarkaður og tækifærin með íslenska landsliðinu hafa látið á sér standa.

„Þetta er eitthvað sem maður lærir eftir því sem maður verður eldri í fótbolta. Þetta er bara rússíbani. Stundum ertu á leiðinni upp og stundum á leiðinni niður.“

Hann sagði mikilvægt að halda áfram að leggja sig fram.

„Mitt hugarfar er að ef ég hætti að vinna og leggja mitt af mörkum er einn sem tapar á því og það er ég.“

Við lýsinguna á hugarfarinu vísaði hann í teiknimyndina Leitin að Nemó.

„Hugarfarið er bara „haltu áfram að synda“, sama hvernig straumurinn er.“

Skýringin á tilvísuninni kom svo í ljós.

„Ég var akkúrat að horfa á Leitina að Nemó með litla um daginn.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab