Fann öryggisgalla í vafra Google
Google-tölvurisinn hefur staðfest gallann í Google Chrome-vafranum sem Árni Már uppgötvaði nýverið. Ljósmynd/Colourbox
„Gallinn kom í ljós þegar ég var að kafa ofan í hvernig Chrome vinnur úr ákveðnu vefefni og heldur utan um minnið. Gervigreindin hjálpaði helling við þetta, en ég var sjálfur að stýra vinnunni. Ég prófaði þetta síðan í Chrome og staðfesti að gallinn væri til staðar.“
Þetta segir Árni Már Harðarson, tölvuöryggisráðgjafi í Ástralíu, en hann uppgötvaði nýverið alvarlegan öryggisgalla í kóða að baki Google Chrome-vafranum sem hefur vakið athygli Google-risans og þarlendra fjölmiðla.
Spurður um hvers slags galli sé á ferðinni segir Árni að Chrome-vafrinn hafi verið að nota minni sem hann hafði þegar losað. Það geti valdið hruni á vafranum en einnig gefið hökkurum færi á að láta vafrann keyra sinn eigin kóða.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗