Lögbann tefur áform Alvotech í Bandaríkjunum
Bráðabirgðalögbann hefur verið lagt á í tengslum við AVT05, fyrirhugaða hliðstæðu Alvotech við lyfin Simponi og Simponi Aria, í Bandaríkjunum.
Dómstóll í Virginíu féllst á beiðni lyfjafyrirtækisins Janssen um lögbannið. Alvotech ætlar að áfrýja niðurstöðunni og óska eftir flýtimeðferð.
Lögbannið varðar eitt einkaleyfi á síunarferli í framleiðslu að því er fram kemur í tilkynningu. Alvotech telur framleiðsluferli sitt ekki brjóta gegn einkaleyfinu og telur það jafnframt ógilt vegna áður þekktrar tækni.
Félagið gerir enn ráð fyrir að AVT05 verði meðal fyrstu hliðstæðna við Simponi á Bandaríkjamarkaði.
Í tilkynningu þess segir að pantanastaða og eftirspurn eftir lyfjum félagsins séu áfram sterkar.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗