„Líflínan þeirra var biluð þyrla í Reykjavík“
Sigurður Ásgeirsson, þyrfluflugstjóri hjá Landhelgisgæslu Íslands, gagnrýnir harðlega stöðu öryggismála hér á landi í kjölfar sjóslyssins úti fyrir Austurlandi í gær.
Hann segir björgunaraðgerð þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar hafa verið langt utan þeirra öryggismarka sem Gæslan starfar eftir og lýsir henni sem „sjálfsmorðsleiðangri“.
Aðeins ein af þremur björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar hafi verið tiltæk þegar útkallið barst. Sigurður segir að í stað þess að fara á þyrlu í útkallið hafi hann farið á lögreglubíl á hæsta forgangi yfir Möðrudalsöræfi.
Þetta kemur fram í færslu sem Sigurður birti á Facebook í morgun en hann tók sjálfur þátt í viðbragðinu vegna slyssins.
Þrír skipverjar létust eftir að fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk á Héraðsdjúpi, um 100 kílómetra austur af Glettingi, síðdegis í gær. Fjórtán skipverjum var bjargað.
Segir skrifin geta kostað sig starfið
Sigurður segir erfitt að koma orðum að því sem hann tók þátt í í gærkvöldi og nótt og þeim örum sem reynslan muni skilja eftir sig.
„Mögulega eiga þessi skrif eftir að kosta mig vinnuna eða í það minnsta eina væna áminningu í starfi. Það verður þá að hafa það.“
Hann gagnrýnir það sem hann telur vera meðvirkni þeirra sem starfa við öryggismál á Íslandi, hvort sem er hjá Landhelgisgæslunni, lögreglunni, slökkviliðum eða annars staðar, gagnvart því getuleysi og áhugaleysi sem málaflokknum hafi verið sýnt á síðustu áratugum.
„Það má ekki upplýsa hversu ömurleg staðan er á þessum málum á Íslandi.“
Fór á lögreglubíl í stað þyrlu
Sigurður segir aðkomu sína að útkallinu hafa verið með öðrum hætti en hann hefði óskað sér.
„Í þetta útkall mætti ég ekki á þyrlu heldur á lögreglubíl á hæsta forgangi yfir Möðrudalsöræfi.“
Þegar komið var til Egilsstaða hafi hlutverk áhafnar hans verið að vera til taks ef áhöfn þyrlunnar, sem flogið hafði frá Reykjavík, yrði örmagna eða ef við tæki langvarandi leit.
„Þegar þangað var komið var afrek mitt það kvöldið að éta pizzur í flugstöðinni á Egilsstöðum,“ skrifar Sigurður.
Aðeins ein björgunarþyrla hafi verið tiltæk á Íslandi og hún verið staðsett í Reykjavík, líkt og venjulega, ásamt hinum tveimur sem hafi verið bilaðar.
„Ekki í fyrsta skipti og ekki í hundraðasta skipti. Á þetta hefur verið bent milljón sinnum.“
Unnu björgunarþrekvirki
Sigurður fer lofsamlegum orðum um störf áhafnar þyrlunnar sem bjargaði skipverjunum og segir hana hafa unnið björgunarþrekvirki sem lengi verði í minnum haft.
Þyrlunni hafi verið flogið með suðurströnd landsins í illviðri með viðkomu á Hornafirði til eldsneytistöku.
Sigurður segir að áhöfn þyrlunnar hafi tekist að hífa alla sautján skipverjana um borð eftir að þeir höfðu verið í sjónum í fimm klukkustundir.
„Ég endurtek, fimm klukkustundir í sjónum í björgunargöllunum einum saman. Þrír af þessum sautján munu ekki sameinast fjölskyldum sínum aftur. Megi guð blessa þá.“
Líflínan hafi verið biluð þyrla
Sigurður segir leiðangurinn sem farinn var hafa verið langt utan öryggismarka Landhelgisgæslunnar.
„Sjálfsmorðsleiðangur þar sem þyrluáhöfnin, sigmenn sem niður fóru og eftirlifendur sjóslyssins hefðu líklegast týnt lífi ef eitthvað hefði farið úrskeiðis. Líflínan þeirra var biluð þyrla í Reykjavík og þyrluáhöfn að éta pizzur á Egilsstaðaflugvelli.“
Hann segir það þó gleðiefni að fjórtán mönnum hafi verið bjargað og fyrir það beri að þakka.
Aðeins ein þyrla til taks
Eins og mbl.is greindi frá í nótt sagði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, í samtali við blaðamann í samhæfingarstöð almannavarna í gærkvöldi að aðeins ein þyrla hefði verið til taks.
Neyðarkall barst frá skipstjóra Jökuls laust eftir klukkan 17 í gær og kom eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, á vettvang um klukkan 20.
Þyrla Gæslunnar kom á vettvang laust eftir klukkan 21, um fjórum klukkustundum eftir að neyðarkallið barst.
Aðstæður á slysstað voru afar erfiðar. Ölduhæð var um átta til tíu metrar þegar skipið sökk.
Öllum sautján skipverjunum var náð um borð í þyrluna sem lenti á Egilsstöðum á tólfta tímanum í gærkvöldi.
Hvetur landsmenn til að hafa hátt
Sigurður hvetur alla Íslendinga til að hafa hátt þar til öryggismálum hér á landi hefur verið komið í viðunandi horf.
Hann kveðst vona að reiðin vegna stöðu öryggismála á Íslandi og þau fögru fyrirheit sem nú verði gefin lifi fram yfir kaffitíma næstkomandi sunnudags.
„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag,“ segir Sigurður að lokum.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗