Þyrluflugmaður Gæslunnar til 30 ára er ómyrkur í máli: „Mögulega eiga þessi skrif eftir að kosta mig vinnuna“
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 10:45
Sigurður Ásgeirsson. Mynd: Facebook
Sigurður Ásgeirsson, sem starfað hefur sem þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni í þrjá áratugi, segir að aðeins ein af þremur björgunarþyrlum gæslunnar hafi verið flughæf í kjölfar sjóslyssins í gærkvöld. Þetta hörmulega ástand hafi meðal annars haft í för með sér að hann sjálfur hafi verið aðgerðalaus, borðað pizzu í flugstöðinni á Egilsstöðum, á meðan þyrfluáhöfnin sem flaug frá Reykjavík vann sitt björgunarafrek. Sigurður er afar reiður yfir þessari stöðu öryggismála og skrifaði eftirfarandi pistil um málið á Facebook-síðu sína:
„Það er erfitt að komast með góðum orðum að því sem að ég var þátttakandi að síðasta kvöld og nóttina sem leið, og hvaða ör það mun skilja eftir í tilfinningum mínum. Mögulega eiga þessi skrif eftir að kosta mig vinnuna eða í það minnsta eina væna áminningu í starfi. Það verður þá að hafa það.
Það virðist vera hluti af starfslýsingu þeirra sem starfa við öryggismál á Íslandi hvort sem það er landhelgisgæsla, lögregla, slökkvilið eða aðrir að sýna fulla meðvirkni með því getu og áhugaleysi sem þessum málum hefur verið sýnt á síðustu áratugum. Það má ekki upplýsa hversu ömurleg staðan er á þessum málum á Íslandi.
Mín aðkoma að útkalli næturinnar er ekki með þeim hætti sem ég hefði óskað mér. Í þetta útkall mætti ég ekki á þyrlu heldur á lögreglubíl á hæsta forgangi yfir Möðrudalsöræfi. Þrátt fyrir það var ég fyrsti starfsmaður Landhelgisgæslunnar til að “mæta” á “vettvang”. Þegar þangað var komið var afrek mitt það kvöldið að éta pizzur í flugstöðinni á Egilsstöðum. Vera til staðar ef hin áhöfnin sem verkið vann og flaug frá Reykjavík myndi örmagnast eða taka við ef löng leit tæki við. Að þessu sinni var einungis ein björgunarþyrla tiltæk á Íslandi og hún var líkt og venjulega staðsett í Reykjavík ásamt hinum tveim sem voru bilaðar. Ekki í fyrsta skipti og ekki í hundraðasta skipti. Á þetta hefur verið bent milljón sinnum.
Á meðan pizzuáti minnar áhafnar stóð vann áhöfnin á starfhæfu þyrlunni björgunarþrekvirki sem lengi verður í minnum haft. Eftir að hafa flogið með suðurströndinni í illviðri með eldsneytistöku á Hornafirði tókst þyrlunni að hífa sautján skipverja um borð eftir fimm klukkustundir - ég endurtek, fimm klukkustundir í sjónum í björgunargöllunum einum saman. Þrír af þessum sautján munu ekki sameinast fjölskyldum sínum aftur. Megi guð blessa þá.
Leiðangurinn sem farinn var er langt utan þeirra öryggismarka sem Landhelgisgæslan hefur. Sjálfsmorðsleiðangur þar sem þyrluáhöfnin, sigmenn sem niður fóru og eftirlifendur sjóslyssins hefðu líklegast týnt lífi ef eitthvað hefði farið úrskeiðis. Líflínan þeirra var biluð þyrla í Reykjavík og þyrluáhöfn að éta pizzur á Egilsstaðaflugvelli.
Gleðin er þó að 14 mönnum var bjargað. Fyrir það ber að þakka.
Ég mun ekki svara eða taka undir þau komment sem hér undir verða væntanlega skrifuð.
Ég hvet alla íslendinga til að hafa hátt þangað til að þessi mál eru með fullnægjandi hætti og vona að reiðin með stöðu öryggismála á Íslandi og fögru fyrirheitin sem nú verða básunuð lifi fram yfir kaffitíma næstkomandi sunnudags. Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗