Lykileikur í kvöld

Tryggvi Snær Hlinason.

Tryggvi Snær Hlinason. mbl.is/Karítas

Tryggvi Snær Hlinason, miðherji og lykilmaður íslenska landsliðsins í körfubolta, segir íslenska landsliðið vera vel stemmt fyrir komandi verkefni í undankeppni HM 2027. Ísland mætir Bosníu í Laugardalshöll í kvöld og Tyrklandi á útivelli á sunnudag.

Staðan í riðlinum er erfið en íslenska liðið ætlar sér að gera allt sem í þess valdi stendur til að halda voninni um sæti á HM á lífi.

„Við erum bara stemmdir. Við erum búnir að taka nokkrar æfingar núna og höfum skoðað Bosníu þannig að okkur líst bara vel á þetta og erum til í slaginn,“ sagði Tryggvi Snær við mbl.is.

Þurfum að vinna okkar leiki

Ísland átti erfitt uppdráttar gegn Serbíu og Tyrklandi í síðasta landsleikjaglugga. Tryggvi segir íslenska liðið hafa vitað frá upphafi að verkefnið yrði krefjandi og að öll liðin í riðlinum væru sterk.

„Við vissum að þetta yrðu hörkulið, öll liðin, og að þetta yrði alltaf erfitt frá byrjun. Eins og staðan er núna í riðlinum eru allir að berjast um lokasætið og við þurfum að vinna okkar leiki til að komast áfram og treysta á að önnur lið geri sitt.

Við viljum allavega gera það sem í okkar valdi stendur og reyna að ná þessum sigrum. Bosnía er eitt af liðunum sem við þurfum að vinna ef við ætlum okkur að komast áfram og við byrjum á því,“ sagði Tryggvi.

„Við spiluðum gegn tveimur ógeðslega góðum liðum í síðasta glugga. Tyrkirnir fóru aðeins illa með okkur í síðasta leik en við getum ekki verið að dvelja of mikið við það. 

Við þurfum að geta haldið boltanum undir stjórn og ekki tapað honum í einhverja vitleysu. Á sama tíma þurfum við að nýta þau tækifæri sem gefast til að koma liðum á óvart.

Við þurfum að leggja okkur alla fram og berjast fyrir því að taka fráköst þó að andstæðingurinn sé með hávaxnara lið. Við erum vanir því," bætti hann við.

Tryggvi segir lítinn tíma gefast til að gera stórar breytingar á milli leikja í landsleikjagluggunum. Liðið ætli því að halda áfram að byggja á því sem hefur gengið vel.

„Það er svo stuttur tími til að æfa eða breyta einhverju og það sem við höfum verið að gera hefur virkað nokkuð vel. Við erum bara sáttir við það sem við erum að gera. Við ætlum að halda áfram að berjast og sýna hvað í okkur býr,“ sagði Tryggvi.

Stuðningurinn skiptir sköpum

Íslenska liðið hefur oft sýnt styrk sinn á heimavelli og Tryggvi segir stuðning áhorfenda geta skipt sköpum í leiknum gegn Bosníu.

„Það er ekki spurning. Þegar við náum að fylla höllina og búum til orkuna og stemninguna sem myndast oft hérna hjá okkur getum við gert ótrúlega hluti, eins og við höfum til dæmis gert gegn Litháen.

Sérstaklega þegar leikmenn eins og Elvar (Már Friðriksson) eru í stuði. Við ætlum okkur bara að eiga hörkubaráttu og þessi fyrsti leikur hérna heima er lykillinn,“ sagði hann.

linkur á frétt í kvöld

Nánar er fjallað um leik Íslands og Bosníu í kvöld á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab