„Þyrlur eru ekki hilluvara í dag“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hafa báðar talað fyrir því að þyrla Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ríkisstjórnin hyggst flýta vinnu við að útvega fjórðu þyrlu Landhelgisgæslunnar í kjölfar sjóslyssins austur af landi í gær. Bæði forsætisráðherra og dómsmálaráðherra hafa talað fyrir því að þyrla verði staðsett á Akureyri.
Þrír skipverjar á Jökli létust í slysinu en fjórtán var bjargað.
Þetta kom fram á blaðamannafundi í ráðherrabústaðnum í morgun.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði slysið sýna í skýru ljósi mikilvægi þess að viðbúnaður væri dreifðari um landið. Málið hefði verið til alvarlegrar skoðunar frá upphafi kjörtímabilsins og stefnt væri að því að ljúka því fyrir lok þess.
„En þetta var sannarlega á dagskrá hjá okkur og verður þeirri vinnu flýtt eins og kostur er,“ sagði Kristrún.
Sterk rök fyrir staðsetningu á Akureyri
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sagði umræðuna um staðsetningu þyrlu á Norðurlandi hafa staðið yfir í áratugi. Báðar hefðu þær Kristrún talað opinberlega fyrir því að sterk rök væru fyrir staðsetningu hennar á Akureyri.
Hún benti þó á að þyrlur væru „ekki hilluvara í dag“ og að tíma tæki að eignast slíkt tæki.
Níu viðhaldstímar á móti hverri flugstund
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði að staðsetning þyrlu á Akureyri hefði getað haft áhrif á viðbragðstímann í gær, enda styttri loftlína þaðan á slysstað en frá Reykjavík.
Hann sagði viðhald þyrlna umfangsmikið en níu viðhaldstímar væru á móti hverri flugstund. Til þess að tryggja að tvær þyrlur væru tiltækar þyrfti Gæslan að hafa fjórar yfir að ráða.
Aldrei verið jafn vel tækjum búin
Georg tók þó fram að Landhelgisgæslan hefði aldrei verið jafn vel tækjum búin og nú. Varðskipin tvö væru öflug og nýleg, flugvélin góð og hentug og þyrlurnar með því besta sem völ væri á.
Hann lýsti jafnframt miklu stolti yfir starfsfólki Landhelgisgæslunnar og sagði björgunaraðgerðirnar í gær hafa sýnt hvers það væri megnugt.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
