Georg: „Þeir voru bátlausir“
Innlent | mbl | 26.11.2026 | 10:20
„Það er rétt, samkvæmt frásögn skipverja, að þá var annar báturinn [björgunarbátur] fastur og hinn rak frá þeim. Þannig að þeir voru bátlausir.“
Þetta sagði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, þegar hann svaraði spurningum blaðmanna í Ráðherrabústaðnum í morgun, en þar fór fram blaðamannafundur vegna sjóslyssins í gær.
Hann sagðist aftur á móti ekki vita hvernig þetta atvikaðist. Þetta yrði nú í höndum rannsóknarnefndar samgönguslysa sem færi með rannsókn málsins.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗