40 ár síðan faðir Sigga Hlö féll í sjóinn
Í kjölfar sjóslyssins í gærkvöldi rifjar Sigurður Helgi Hlöðversson, útvarpsmaður og ferðamálafrömuður, upp þegar hann missti föður sinn. Samsett mynd/Eva Björk Ægisdóttir/Árni Sæberg
Sigurður Helgi Hlöðversson, útvarpsstjarna og ferðamálafrömuður, rifjar upp andlát föður síns í kjölfar sjóslyssins í gærkvöldi. Sigurður greinir frá því að tæp 40 ár séu síðan að faðir hans lést í sjóslysi um jólin.
„Það er tæpur mánuður í jól. Tæpur mánuður í að 40 ár eru liðin frá því að pabbi minn dó í sjóslysi þegar MS Suðurland sökk. Þá kemur frétt af sjóslysi við Ísland, 17 manns í sjóinn og til að byrja með engar fréttir af mannbjörg. Ég fraus. Á sekúndubroti helltust yfir mig tilfinningar og ég var í huganum kominn heim til ömmu og afa á jóladag 1986, í jólaboð fjölskyldunnar. Ég var að klæða mig í jólafötin og þá koma fréttir um að Suðurlandið sé sokkið. Í heilan dag reyndum við að halda jól fyrir minnstu börnin sem vissu ekkert um að við biðum og biðum eftir fréttum,“ rifjaði Sigurður upp.
Fékk tak í hjartað þegar síminn hringdi
Siguður, gjarnan kallaður Siggi Hlö, rifjar upp að ekki annað en heimasími hafi verið til staðar.
„Í hvert sinn sem síminn hringi á jóladag fékk ég tak í hjartað og svitnaði í lófunum, alveg sama tilfinning og í seint í gærkveldi þegar ég gerði „refresh“ á öllum fréttamiðlum landsins á mínútu fresti. Hugur minn reikaði til allra fjölskyldumeðlimanna sem í gærkveldi og nótt biðu á milli vonar og ótta eftir góðum fréttum.“
Man hvar hann stóð
Siggi Hlö bendir á að flestir hafi fengið góðar fréttir í gærnótt þar sem fjórtán manns var bjargað. Hann rifjar upp hvar hann stóð þegar hann fékk fréttirnar af föður sínum.
„Ég gleymi því aldrei, ég man hvar ég stóð, ég man öskrin og gráturinn svo ískrandi. Pabbi var dáinn. Jólaboðið er ein furðulegasta veisla sem ég hef upplifað, krakkarnir að dansa í kringum jólatréð inní stofu stútfull af kakó og mömmukökum, syngjandi af gleði og svo fullorðna fólkið frammí eldhúsi hágrátandi af sorg,“ skrifaði hann.
Mikið björgunarafrek
„Þeim sem bjargað var af Suðurlandinu telst vera eitt mesta björgunarafrek sögunnar, björgunin svo rosaleg að um það var skrifuð bók og síðar gerð bíómynd um afrekið. Mér heyrist á fréttum að annað eins afrek hafi verið unnið í nótt. Í svartasta skammdeginu skella á okkur ömurlegar fréttir. Hugur minn er hjá skipverjum og fjölskyldum þeirra og ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til þeirra sem misstu ástvin í þessu sjólsysi,“ skrifaði hann að lokum.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗