Fréttirnar af Jökli kölluðu fram sárar minningar hjá Sigurði: „Ég man öskrin og gráturinn svo ískrandi. Pabbi var dáinn“

Sigurður Helgi Hlöðversson, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Visitor, minnist þess að faðir hans fórst á sjó á jóladag 1986 þegar Suðurlandið sökk. Segir hann hug sinn vera hjá skipverjum Jökuls ÞH299 sem sökk í gær, og fjölskyldum þeirra. Hann sendi sínar innilegustu samúðarkveðjur til þeirra sem misstu ástvin í sjóslysinu.

„Þrír látnir og fjórtán bjargað. Það er tæpur mánuður í jól. Tæpur mánuður í að 40 ár eru liðin frá því að pabbi minn dó í sjóslysi þegar MS Suðurland sökk. Þá kemur frétt af sjóslysi við Ísland, 17 manns í sjóinn og til að byrja með engar fréttir af mannbjörg.“ 

Segist Sigurður hafa frosið við fréttirnar, tilfinningar helst yfir hann á sekúndubroti:

„Ég var í huganum kominn heim til ömmu og afa á jóladag 1986, í jólaboð fjölskyldunnar. Ég var að klæða mig í jólafötin og þá koma fréttir um að Suðurlandið sé sokkið. Í heilan dag reyndum við að halda jól fyrir minnstu börnin sem vissu ekkert um að við biðum og biðum eftir fréttum. Þarna var ekkert annað en heimasími. Amma og afi voru með eldgamlan LM Ericson síma, svartur og vígalegur með furðulegum hringitón. Lítið símaborð, skúffa með símaskránni og svo þessi svarti sími.

Í hvert sinn sem síminn hringdi á jóladag fékk ég tak í hjartað og svitnaði í lófunum, alveg sama tilfinning og í seint í gærkveldi þegar ég gerði refresh á öllum fréttamiðlum landsins á mínút fresti. Hugur minn reikaði til allra fjölskyldumeðlimanna sem í gærkveldi og nótt biðu á milli vonar og ótta eftir góðum fréttum. Flestir fengu góðar fréttir í nótt alveg eins og þegar Suðurlandið fórst en svo kom höggið.

Ég gleymi því aldrei, ég man hvar ég stóð, ég man öskrin og gráturinn svo ískrandi. Pabbi var dáinn.“ 

Segir Sigurður jólaboðið árið 1986 vera eina furðulegastu veislu sem hann hefur upplifað, krakkarnir að dansa í kringum jólatréð inn í stofu stútfull af kakó og mömmukökum, syngjandi af gleði og svo fullorðna fólkið fram í eldhúsi hágrátandi af sorg.

„Þeim sem bjargað var af Suðurlandinu telst vera eitt mesta björgunarafrek sögunnar, björgunin svo rosaleg að um það var skrifuð bók og síðar gerð bíómynd um afrekið. Mér heyrist á fréttum að annað eins afrek hafi verið unnið í nótt.

Í svartasta skammdeginu skella á okkur ömurlegar fréttir.

Hugur minn er hjá skipverjum og fjölskyldum þeirra og ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til þeirra sem misstu ástvin í þessu sjólsysi.“ 

Sex fórust á jólanótt fyrir 40 árum

Á jólanótt árið 1986 sökk íslenska flutningaskipið M/S Suðurland um 300 sjómílur austan af Langanesi, miðja vegu milli Íslands og Noregs. Skipið var á leið til Murmansk í Rússlandi, fyllt saltsíld og voru ellefu skipverjar um borð. Sex fórust.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab