Guardiola staðfestir hvað tekur við – „Þetta verður næsta skrefið“

Pep Guardiola, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester City, hefur staðfest að næsta starf hans í þjálfun verði hjá landsliði.

Spánverjinn greindi frá þessu í viðtali við brasilísku goðsögnina Romário á Romário TV.

„Landslið. Það verður næsta skrefið á mínum ferli,“ sagði Guardiola þegar hann var spurður hvort það væri eitthvað lið sem hann hefði aldrei þjálfað en langaði að taka við.

Guardiola yfirgaf Manchester City í sumar eftir tíu ár hjá félaginu þar sem hann vann meðal annars sex Englandsmeistaratitla og Meistaradeild Evrópu.

Hann greindi einnig frá því að hafa hafnað því að taka við ítalska landsliðinu fyrr á árinu þar sem hann taldi sig þurfa hvíld frá þjálfun.

Guardiola hefur verið orðaður við bandaríska landsliðið að undanförnu en ekki liggur fyrir hvaða landslið hann mun taka við eða hvenær hann snýr aftur á hliðarlínuna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab