Sorg, reiði og áleitnar spurningar eftir sjóslysið fyrir austan - „Það fýkur í mig“

Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, segir starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa unnið hetjudáð á slysstað í gær þegar 14 skipverjum Jökuls ÞH299 var bjargað.  Hún segir það þyngra en tárum taki að þrír hafi farist, og segir ekki boðlegt að bjóða sjómönnum upp núverandi aðstæður, og heldur ekki þyrlusveitum Landhelgisgæslunnar.

Jón Gunnarsson, þingmaður og fyrrum ráðherra, segir að efla þurfi þyrlukost Landhelgisgæslunnar og staðsetningu þyrlna. Skylda beri til að tryggja sem best öryggi sjómanna.

Illugi Jökulsson, rithöfundur og fyrrum blaðamaður, biðlar til fólks að fara varlega í yfirlýsingar um hvað gerðist á slysstað. Björn Þorláksson, blaðamaður á Samstöðinni, segir samstöðu í sorginni. 

„Starfsmenn Landhelgisgæslunnar unnu hetjudáð í gær. Þeir björguðu 14 mannslífum en því miður létust þrír. Það er þyngra en tárum taki. Og það er óþægilegt að sitja uppi með þá magatilfinningu að ef hlutinir hefðu verið í lagi hefði kannski verið hægt að bjarga þeim,“ segir Hafrún í færslu sinni á Facebook. 

Hafrún bendir á að Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, hafi verið í viðtali í Spursmálum Morgunblaðsins síðasta föstudag. Segir hún óþægilegt að hlusta á viðtalið í ljósi sjóslyssins sem gerðist örfáum dögum síðar. 

„Þar kom skýrt fram að staða þyrlumála væri ekki nógu góð. Tvær þyrlur væru aðeins tiltækar 65% tímans og þegar ein þyrla væri tiltæk væri ekki hægt að fara lengra en 20 mílur frá landi til björgunar á sjó. Tvær þyrlur þyrfti í slíka svaðilför.“ 

„Þetta var hörmulegt slys en líka björgunarafrek“ 

„Þetta var hörmulegt slys en líka björgunarafrek,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðinum kl. 9 í morgun þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sátu einnig fyrir svörum. „En þrír skipverjar létust sem er þyngra er tárum taki.“

Kristrún vottaði aðstandendum samúðar og þakkaði bæði viðbragðsaðilum og skipverjunum sjálfum fyrir.

Sjá einnig: „Við gátum séð þá einn af öðrum stökkva í sjóinn“

Segir að efla þurfi þyrlukost Landhelgisgæslunnar og staðsetningu þyrlna

Jón Gunnarsson, þingmaður og fyrrum ráðherra, segir að efla þurfi þyrlukost Landhelgisgæslunnar og staðsetningu þyrlna. Skylda beri til að tryggja sem best öryggi sjómanna. Jón segist líkt og aðrir hafa fylgst náið með björgun og afdrifum áhafnar Jökuls ÞH í gærkvöldi. 

„Aftur og aftur er leitað í bænina, hugsað til áhafnar, fjölskyldna þeirra og björgunarmanna. Bænin og kristin trún er haldreypi þjóðar okkar á örlagastund. Nú bíðum við frétta af afdrifum áhafnar, vonum og biðjum.“

Hafrún segir að fjármagn hafi ekki fengist fyrir fjórðu þyrlunni

Segir Hafrún að lengi hafi verið bent á vandann, en fjármagn fyrir fjórðu þyrlunni hefði ekki fengist. Einnig kom fram að sú þyrla þyrfti að vera staðsett á Akureyri til að hægt væri að sinna Norðurlandi og Norðausturlandi betur. Norðausturland væri nánast afskipt og það á einnig við um miðhálendið.

„Í gær var ein þyrla tiltæk, í Reykjavík. Skipið sem sökk var samkvæmt fréttum statt 60 mílur undan Norðausturlandi. Þegar ég legg saman tvo og tvo út frá þessum fréttaflutningi get ég ekki betur séð en að áhöfn þessarar einu þyrlu hafi lagt sig í verulega hættu með því að fara þessa ferð langt út á ballarhaf, án stuðnings annarrar þyrlu. Hetjur eru þau svo sannarlega.“ 

Segir Hafrún að í sama viðtali við Georg hafi komið fram fram að það myndi kosta milljarð á ári að reka fjórðu þyrluna. Nauðsynlegt væri að fá hana en fjármagnið fengist ekki. Þvert á móti stæði Gæslan frammi fyrir 900 milljóna króna niðurskurðarkröfu á næsta ári, sem jafngilti um 10% af rekstrartekjum hennar.

„Er ekki kveikt á öllum perum hjá fólki? Það fýkur í mig og maður á ekki að skrifa Facebook statusa þegar maður er reiður en ég ætla bara samt að gera það. Það er óþolandi að við getum ekki tryggt að algjör lykilstofnun í landinu sé í lagi. Það er ekki hægt að bjóða sjómönnum upp á þessar aðstæður. Og það er heldur ekki hægt að setja starfsmenn Landhelgisgæslunnar, sérstaklega þyrlusveitirnar, í þær aðstæður sem þau stóðu frammi fyrir í gær. Getum við bara hysjað upp um okkur?“ 

Segir Hafrún að í nýkynntri hagspá Seðlabankans komi fram að ríkissjóður stefndi í 17 milljarða króna halla miðað við nýjar forsendur. „Daði Már sagði við það tilefni að 17 milljarðar væru mjög lítil upphæð í samhengi hlutanna. Í ljósi þeirra ummæla þá hlýtur að vera hægt að redda tveimur miljörðum. Þeir myndu duga til þess að Gæslan þyrfti ekki að sæta um 10% niðurskurði og gæti rekið fjórðu þyrluna.

„Fyrst þetta er bara klink í huga Daða er ekkert annað í stöðunni en að græja þetta mál. Þessi ógeðslega hallærislega teikning af núllinu getur ekki verið mikilvægari en öryggi sjófarenda og raunar landsmanna allra. Þetta er dýr lærdómur en við verðum að læra. Kippið þessu í liðinn ekki seinna en í dag.“

Biðlar til fólks að fara varlega í yfirlýsingar

Illugi Jökulsson, rithöfundur og fyrrum blaðamaður, biðlar til fólks að fara varlega í yfirlýsingar um hvað gerðist á slysstað:

„Sem betur fer eru sjóslys orðin fátíð og þeim mun meira áfall er slys eins og henti Jökul og áhöfn hans. Öll vottum við aðstandendum þeirra sem fórust innilega samúð og líka þeim sem lifðu. Ég mundi svo ráðleggja öllum að fara mjög varlega í yfirlýsingar um hvað kunni að hafa gerst. Við getum ekki vitað það á þessari stundu og fabúleringar um það eru engum til gagns.“ 

Segir að ekki megi gefa afslátt af björgunargetu til sjós

Bendir Jón Gunnarsson á að fyrir tilstilli Slysavarnarskóla sjómanna hefur grettistaki verið lyft í slysavörnum sjómanna á undanförnum áratugum. Sú þjálfun og reynsla hefur örugglega skilað sér.

„Björgunargeta okkar er öflug en leita þarf leiða til að styrkja hana með öllum ráðum. Yfirlit yfir nærstædd skip liggur fyrir í rauntíma og það skilaði sér í gærkvöldi í því að 5 fiskiskip lögðu þegar af stað og voru komin um það leiti sem þyrlan mætti á staðinn. Sjómenn henda öllu frá sér til að bjarga félögum sínum, allir starfa sem einn maður.

Sem sérstakur áhugamaður um björgunarskip Landsbjargar verð ég að segja að áhafnir skipa okkar frá Neskaupsstað og Vopnafirði sýndu virkilega hvað í þeim býr. Hafbjörg á Neskaupsstað er skráð 14 metra langt skip u.þ.b. 40 brúttótonn. Þeir keyrðu megnið af tímanum á 14-16 hnútum í miklum ólgusjó og voru komnir á staðinn þegar björgunaraðgerðir voru langt komnar.“

Segir Jón að það sé ástæða fyrir því að Slysavarnafélagið Landsbjörg leggur áherslu á að vera með svo öflug skip á 13 stöðum við landið. 

„Það er einmitt til þess að geta tekið um borð áhafnir af okkar stærri fiskiskipum við aðstæður sem þessar. Þess vegna stendur félagið nú um stundir að því að efla björgunarskipakost sinn. Það er metnaðarfullt verkefni og stærsta fjármögnunarverkefni í sögu félagsins.

Ég ber mikla virðingu fyrir því fólki sem í sjálfboðavinnu leggur allt í sölurnar á örlagatímum.

Þyrlukostur okkar og staðsetning er sér kapituli. Þessa þjónustu verðum við að efla. Okkur ber skylda til að tryggja sem best öryggi þeirra sem til sjós starfa og færa okkar þjóð svo sannarlega björg í bú. Við þurfum, fordæmalaust, að skoða hagkvæmasta rekstrarfyrirkomulag og samsetningu þyrluflota okkar til að efla sem best getu okkar og þar með staðsetningu björgunartækja. Nágrannaþjóðir fara mismunandi leiðir og til þess ber einnig að líta. Grunnatriði er þó að gefa engan afslátt af björgunargetu okkar til sjós.“

Tími samstöðu í sorginni

Björn Þorláksson, blaðamaður á Samstöðinni, segist muna þegar sjóslys voru tíð og margir fórust á sjó. Nú sé tími samstöðu í sorginni: 

„Nú er tími samstöðu í sorginni. Nú liggur fyrir að hafið tók ekki færri en þrjú mannslíf. Bylmingshögg fyrir alla þjóðina þótt ekki þurfi að taka fram að sárast eiga þeir sem standa næst þeim sjómönnum sem létust. Af veikum mætti sendir maður innilegustu samúðarkveðjur. Við sem eldri erum, munum þegar sjóslys voru mjög tíð og tugir Íslendinga létust stundum með skömmu millibili í hafinu. Nú grátum við öll sem eitt að þrjú mannslíf hafi verið tekin frá okkur korteri fyrir upphaf aðventu. Við erum heppin að hafa Landhelgisgæsluna, við þökkum öllu því hugdjarfa og góða fólki sem vann að fjöldabjörgun við erfiðar aðstæður með ótrúlegum árangri, við þökkum, syrgjum, hugsum hlýtt norður og austur og gerum hvað við getum til að bregðast við áfallinu sem samstæð þjóð.“ 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab