Erfðabreytt fóður heimilað

Fóðuprammi á Patreksfirði. Hér á landi gilda strangar reglur um innihaldsefni fóðurs. mbl.is/Helgi Bjarnason

Norsk stjórnvöld hafa heimilað notkun erfðabreyttra hráefna í fóður fyrir eldisfisk, að því tilskildu að hráefnin geti ekki spírað og að notkun þeirra hafi verið samþykkt innan Evrópusambandsins, að því er fram kemur í nýrri umfjöllun Intrafish.

Vitnað er til orða Marianne Sivertsen Næss sjávarútvegsráðherra Noregs um að norskt fiskeldi eigi að búa við sömu tækifæri og keppinautar þess í Evrópu, í tilkynningu stjórnvalda frá 20. nóvember síðastliðnum.

„Við heimilum nú fiskeldisfyrirtækjum að nota fjölbreyttara úrval hráefna í fiskafóður,“ segir hún þar.

Hér eru efnin leyfð

Þá kemur fram að norska atvinnu- og sjávarútvegsráðuneytið og landbúnaðar- og matvælaráðuneytið hafi samþykkt breytingar á reglugerðum um fóður til að gera þetta mögulegt.

Hér á landi er notkun erfðabreyttra hráefna í fiskeldisfóðri heimil, að því er fram kemur á vef Matvælastofnunar, en um leið er notkun þeirra háð kröfum um merkingar og rekjanleika.

Litið er á notkun slíkra hráefna sem valkost til að draga úr notkun fiskimjöls og lýsis í eldi.

Þá kemur fram að hér gildi engar reglur um það hvaða tegundir erfðabreytinga séu heimilar eða bannaðar.

Eina takmörkunin er sú að samkvæmt reglugerð er óheimilt að fóðra sauðfé á erfðabreyttu fóðri.

Öruggt fyrir fiska og menn

Í Noregi er ákvörðunin sögð byggjast á um 20 ára reynslu af notkun erfðabreyttra hráefna innan ESB, auk áhættumats norsku vísindanefndarinnar um matvæli og umhverfi og norsku matvælaöryggisstofnunarinnar.

Í tilkynningu stjórnvalda kom fram að niðurstöður matsins sýndu að hráefnin væru örugg bæði fyrir eldisfisk og neytendur.

Ákvörðunin er sögð fjölga valkostum norsks fiskeldis við öflun hráefna í fiskafóður, en um leið er áréttað að breytingin nái ekki til fóðurs fyrir búfé eða gæludýr.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab