Bikarúrslitin leikin á Ásvöllum

Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar í karlaflokki.

Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar í karlaflokki. mbl.is/Ólafur Árdal

Haukar verða gestgjafar úrslitahelgar bikarkeppni HSÍ næstu tvö árin. Stjórn HSÍ hefur samþykkt að semja við félagið eftir að hafa farið yfir umsóknir sem bárust í útboði sem sent var félögunum í haust.

Tvö félög sóttu um að halda úrslitavikuna og bæði skiluðu metnaðarfullum umsóknum. Tilboð Hauka var hagstæðast og verður samið við félagið út keppnistímabilið 2027–2028.

„Final 4 er einn af hápunktum handboltaársins á Íslandi. Þar mætast fjögur bestu lið bikarkeppninnar í karla- og kvennaflokki og keppa um titilinn. Einnig fer fram bikarkeppni yngri flokka, þar sem 12 leikir eru spilaðir í sömu umgjörð og hjá meistaraflokkunum, allt á einni stórri helgi.

Með samningnum fær úrslitavikan fastan samastað, og það skapar tækifæri til að byggja upp umgjörðina ár frá ári. Það á við um stemninguna í stúkunni, aðstöðuna fyrir liðin og upplifun áhorfenda heima í stofu.

HSÍ þakkar báðum félögunum fyrir umsóknirnar og þann metnað sem þau sýndu í ferlinu. Næsta úrslitavika í bikarkeppninni fer fram dagana 30. mars til 4. apríl. Nánari upplýsingar um miðasölu og dagskrá verða kynntar þegar nær dregur," segir í tilkynningu HSÍ.

Valur er ríkjandi bikarmeistari kvenna.

Valur er ríkjandi bikarmeistari kvenna. Ljósmynd/Egill Bjarni

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab