Bikarúrslitin leikin á Ásvöllum
Haukar verða gestgjafar úrslitahelgar bikarkeppni HSÍ næstu tvö árin. Stjórn HSÍ hefur samþykkt að semja við félagið eftir að hafa farið yfir umsóknir sem bárust í útboði sem sent var félögunum í haust.
Tvö félög sóttu um að halda úrslitavikuna og bæði skiluðu metnaðarfullum umsóknum. Tilboð Hauka var hagstæðast og verður samið við félagið út keppnistímabilið 2027–2028.
„Final 4 er einn af hápunktum handboltaársins á Íslandi. Þar mætast fjögur bestu lið bikarkeppninnar í karla- og kvennaflokki og keppa um titilinn. Einnig fer fram bikarkeppni yngri flokka, þar sem 12 leikir eru spilaðir í sömu umgjörð og hjá meistaraflokkunum, allt á einni stórri helgi.
Með samningnum fær úrslitavikan fastan samastað, og það skapar tækifæri til að byggja upp umgjörðina ár frá ári. Það á við um stemninguna í stúkunni, aðstöðuna fyrir liðin og upplifun áhorfenda heima í stofu.
HSÍ þakkar báðum félögunum fyrir umsóknirnar og þann metnað sem þau sýndu í ferlinu. Næsta úrslitavika í bikarkeppninni fer fram dagana 30. mars til 4. apríl. Nánari upplýsingar um miðasölu og dagskrá verða kynntar þegar nær dregur," segir í tilkynningu HSÍ.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
