Kristrún: „Meiri viðbúnaður er alltaf betri“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samhæfingarmiðstöðinn í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að stjórnvöld muni flýta þeirri vinnu eins og kostur er, í samráði við Landhelgisgæslu Íslands, að fá fjórðu björgunarþyrluna til landsins sem yrði þá staðsett á Norðurlandi.

Þetta sagði ráðherra á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum þegar hún svaraði spurningum blaðamanna varðandi sjóslysið.

Kristrún sagði að stjórnvöld hefðu verið með það til alvarlegrar skoðunar að hafa björgunarþyrlu Gæslunnar á Akureyri. Málið hefði verið margrætt og að það hefði verið eitt af markmiðum ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili að fá inn fjórðu þyrluna.

„Ég held að það segi sig sjálft að meiri viðbúnaður er alltaf betri. Og við gerum það besta með þann búnað sem við höfum,“ sagði Kristrún. Hún tók þó fram að fundurinn væri þó hvorki staður né stund til að ræða málið á dýptina.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á fundinum í dag.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á fundinum í dag. mbl.is/Karítas

Vinnunni flýtt

„En ég held að þessi atvik sýni það, í mjög skýru ljósi, mikilvægi þess að viðbúnaður sé dreifðari um landið. Og í þessu tilviki á Norðurlandi, þar sem við höfum einmitt talað einna helst fyrir því að verði þyrla. Ég hygg að við munum flýta þessari vinnu núna eins og kostur er í samráði og samtali við Landhelgisgæsluna,“ sagði ráðherra.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók undir orð Kristrúnar um að það væru sterk rök fyrir því að þyrla væri staðsett á Akureyri.

„Eins og forsætisráðherra nefnir þá blasir það auðvitað við að meira viðbragð er alltaf betra. En svo höfum við líka í þessari skoðun sem átt hefur sér stað upplifað það að þyrlur eru ekki hilluvara í dag. Þetta er margra ára fasi að eignast slíka.“

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Karítas

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab